Skák


Eftir Jón G. Hauksson 30. mars 2026
Dagur Ragnarsson , skákmaður Fjölnis 2025 og 2026, er nú orðinn efstur Íslendinga á Reykjavik Open 2026 í Hörpu. Þetta kemur fram hjá Helga Árnasyni, formanni skákdeildar Fjölnis, á FB-síðu hans fyrr í kvöld. „Dagur (2.376 Elo stig) er kominn með 6 vinninga af 8 mögulegum eftir að hafa lagt Kazakann og stórmeistarann Alisher Suleymenov (2.523 Elo stig) að velli í næstsíðustu umferð mótsins. Aldeilis vel gert hjá Degi. Andstæðingurinn Suleymenov Alisher er hvað þekktastur fyrir að hafa unnið Magnus Carlsen nýlega í eftirminnilegri skák. Koma svo Dagur í lokaumferð mótsins sem tefld verður á morgun, þriðjudag 31. mars,“ segir Helgi Árnason í FB-færslu sinni fyrr í kvöld. Svo sannarlega glæsilegur árangur hjá þessum öfluga skákmanni okkar Grafarvogsbúa. - JGH
Eftir Jón G. Hauksson 30. mars 2026
Dagur Ragnarsson , skákmaður Fjölnis 2025 og 2026, er nú orðinn efstur Íslendinga á Reykjavik Open 2026 í Hörpu. Þetta kemur fram hjá Helga Árnasyni, formanni skákdeildar Fjölnis, á FB-síðu hans fyrr í kvöld. „Dagur (2.376 Elo stig) er kominn með 6 vinninga af 8 mögulegum eftir að hafa lagt Kazakann og stórmeistarann Alisher Suleymenov (2.523 Elo stig) að velli í næstsíðustu umferð mótsins. Aldeilis vel gert hjá Degi. Andstæðingurinn Suleymenov Alisher er hvað þekktastur fyrir að hafa unnið Magnus Carlsen nýlega í eftirminnilegri skák. Koma svo Dagur í lokaumferð mótsins sem tefld verður á morgun, þriðjudag 31. mars,“ segir Helgi Árnason í FB-færslu sinni fyrr í kvöld. Svo sannarlega glæsilegur árangur hjá þessum öfluga skákmanni okkar Grafarvogsbúa. - JGH

Eftir Jón G. Hauksson 16. mars 2026
Við Grafarvogsbúar getum svo sannarlega verið stoltir af þessari afreksdömu, Emilíu Emblu B. Berglindardóttur , skákkonu Fjölnis 2025, en hún vann í gær titilinn Stúlknameistari Reykjavíkur 2026. Til hamingju Emilía Embla og Skákdeild Fjölnis þar sem unnið er kraftmikið og einstakt starf undir handleiðslu Helga Árnasonar , fyrrum skólastjóra í Rimaskóla. Fram kemur á FB-síðu Skákdeildar Fjölnis að Emilía hafi teflt í opnum flokki á Stúlkna-og drengjameistaramóti Reykjavíkur og átti að venju góðan dag við taflborðið og uppskar bikara og titilinn Stúlknameistari Reykjavíkur 2026. Hún bætti 50 skákstigum við ELÓ-stigin sín. Ekkert annað en stórkostlegt og til hamingju aftur. - JGH
Eftir Jón G. Hauksson 10. mars 2026
Þær voru magnaðar lokamínúturnar í Íslandsmóti skákfélaga sem haldið var í Rimaskóla um helgina. Um 400 skákmenn mættu í Grafarvoginn og tóku þátt í mótinu. Þegar upp var staðið munaði aðeins einu stigi á Eyjamönnum og Grafarvogsbúum, A-sveit Fjölnis, í Úrvalsdeildinni. Þessi tvö skáklið háðu afar spennandi keppni í síðustu umferð mótsins. Taflfélag Vestmannaeyja hlaut 16 stig gegn 15 Fjölnismanna. Minni gat munurinn ekki orðið og vannst sigurskákin á lokamínútunum í lokaumferðinni. Silfrið fór í Grafarvoginn, gullið til Eyja. Hvílík spenna og loftið rafmagnað. A-sveit Fjölnis er firnasterk og hampaði Íslandsmeistaratitli skákfélaga bæði árin 2024 og 2025. Hún átti því titil að verja fyrir þetta mót. Í Úrvalsdeildinni keppa sex bestu skáksveitir landsins. „Vestmanneyingar fögnuðu sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli á 100 ára afmæli taflfélagsins og gátum við Fjölnismenn vel unnt þeim sigurinn í tilefni þessara tímamóta,“ segir Helgi Árnason , formaður Skákdeildar Fjölnis og liðsstjóri Fjölnismanna. Þetta var síðari hluti Íslandsmótsins og kepptu 400 skákmenn í fimm deildum. Þrátt fyrir sigur Eyjamanna á stigum þá hlaut A-sveit Fjölnis fleiri vinninga, en það eru stigin sem telja.
Eftir Jón G. Hauksson 16. desember 2025
Krakkarnir í Rimaskóla stóðu sig heldur betur vel á jólaskákmóti grunnskólanna sem var á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur sl. sunnudag, 14. desember. Skáksveitir skólans lentu allar í efstu sætum og unnu til verðlauna - enda breiddin mikil og enga veika hlekki að finna. Rimaskóli vann örugglega báða flokkana á barnaskólastigi og voru líka með sterkustu B-sveitirnar. Á unglingastigi varð skólinn í öðru sæti á eftir Réttarholtsskóla en þessir tveir skólar voru með áberandi bestu sveitirnar. Hver skáksveit er skipuð 4 nemendum auk varamanna. Teflt er í þremur aldursflokkum og sendi Rimaskóli tvær skáksveitir í hvern flokk. Það er auðvitað frábær árangur að taka báða flokkana á barnaskólastigi og heyja harða baráttu við Réttarholtsskóla um efsta sætið í unglingaflokki. Skákkennari Rimaskóla er Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands , en umsjónarmaður með skákstarfi skólans er Helgi Árnason , fyrrverandi skólastjóri skólans og formaður Skákdeildar Fjölnis. Til hamingju Rimaskóli og þið sem teflið fyrir hönd skólans - og eruð okkur í Grafarvogi til svo mikils sóma. Áfram þið. Takk, takk. - JGH
Eftir Jón G. Hauksson 15. desember 2025
Þau eru svo sannarlega afreksfólk í íþróttum Annað árið í röð voru þau Emilía Embla og Dagur valin skákmennn Fjölnis 2025. Á glæsilegri uppskeruhátíð Fjölnis í Keiluhöllinni á dögunum var tilkynnt um val á afreks-íþróttafólki félagsins í öllum deildum. Skákdeildin valdi Emilíu Emblu B. Berglindardóttur skákkonu Fjölnis 2025 og Dag Ragnarsson skákkarl Fjölnis 2025. Til hamingju, þið eruð miklar fyrirmyndir í hinu framúrskarandi skákstarfi Fjölnis. Dagur er einn af lykilmönnum í hinni sigursælu Íslandsmeistarasveit Fjölnis sem sigraði á Íslandsmóti skákfélaga í vor með fullu húsi vinninga. Dagur tefldi með landsliði Íslands á EM landsliða í skák sem fram fór í Georgíu í október sl. Emilía Embla er Íslandsmeistari stúlkna í flokki U14 og einnig stúlknameistari Reykjavíkur, annað árið í röð. Hún er í skáksveit Rimaskóla sem vann Íslandsmót barnaskólasveita og náði 3. sæti á NM barnaskólasveita í Finnlandi nú í haust. Skákdeild Fjölnis óskar þeim Emilíu Emblu og Degi hjartanlega til hamingju með heiðurinn. ( Ljósm: Gunnar Jónatansson ). - JGH
Eftir Jón G. Hauksson 24. október 2025
Mikið er ánægjulegt hversu öflugt starf er unnið hjá Skákdeild Fjölnis undir styrkri forystu Helga Árnasonar, fyrrum skólastjóra í Rimaskóla. Tólf ungir snillingar úr Fjölni héldu utan í gær til að taka þátt í hinu alþjóðlega og fjölmenna skákmóti Amsterdam Chess Open og verður teflt um helgina af fullum krafti. Keppnin hófst í morgun. Fararstjóri er Helgi Árnason, formaður skákdeildar Fjölnis, og með hópnum eru foreldrar, eða tíu mömmur, eins og Helgi orðaði það í samtali við Grafarvog.is - JGH
Eftir Jón G. Hauksson 16. september 2025
„Þetta gekk alveg glimrandi vel og krakkarnir komu vel undirbúin til leiks, sýndu baráttu og þolinmæði, yfirvegaða taflmennsku og vandaða tækni,“ segir Helgi Árnason , fararstjóri skáksveitar Rimaskóla sem tefldi á Norðurlandamóti barnaskólasveita í Helsinki í Finnlandi um nýliðna helgi, dagana 12. - 14. september. Skáksveit Rimaskóla endaði í 3ja sæti mótsins og unnu bronsverðlaunin sem gladdi mjög eftir jafna baráttu. Norski Slemdal-skólinn hafði nokkra yfirburði á mótinu en skólarnir 2. - 5. sæti börðust um hin tvö verðlaunasætin. Í skáksveit Rimaskóla á mótinu voru þau Tristan Fannar Jónsson, Emilía Embla B. Berglindardóttir, Sigrún Tara Sigurðardóttir, Emilía Sigurðardóttir og Tara Líf Ingadóttir. Að sögn Helga Árnasonar var ferðin í alla staði vel heppnuð og ánægjuleg og vel staðið að mótinu. Teflt var í húsnæði finnska skáksambandsins og sýnt beint frá öllum skákum mótsins. Gist var á glænýju hóteli Sokos -Tripla sem er í einhverri stærstu verslunarmiðstöð Norðurlandanna. Þetta var í 17. skipti sem Rimaskóli vinnur sér inn þátttöku á Norðurlandamóti grunn- og barnaskólasveita. Skólinn hefur unnið í sex skipti, tvívegis endað í öðru sæti og fimm sinnum hreppt bronsverðlauin. - JGH
Skoða fleiri fréttir