Nú var það silfrið eftir tvö gullár - svakaleg keppni milli Eyjamanna og Grafarvogsbúa

10. mars 2026

Þær voru magnaðar lokamínúturnar í Íslandsmóti skákfélaga sem haldið var í Rimaskóla um helgina. Um 400 skákmenn mættu í Grafarvoginn og tóku þátt í mótinu. Þegar upp var staðið munaði aðeins einu stigi á Eyjamönnum og Grafarvogsbúum, A-sveit Fjölnis, í Úrvalsdeildinni. Þessi tvö skáklið háðu afar spennandi keppni í síðustu umferð mótsins. Taflfélag Vestmannaeyja hlaut 16 stig gegn 15 Fjölnismanna. Minni gat munurinn ekki orðið og vannst sigurskákin á lokamínútunum í lokaumferðinni. Silfrið fór í Grafarvoginn, gullið til Eyja. Hvílík spenna og loftið rafmagnað.


A-sveit Fjölnis er firnasterk og hampaði Íslandsmeistaratitli skákfélaga bæði árin 2024 og 2025. Hún átti því titil að verja fyrir þetta mót. Í Úrvalsdeildinni keppa sex bestu skáksveitir landsins.


„Vestmanneyingar fögnuðu sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli á 100 ára afmæli taflfélagsins og gátum við Fjölnismenn vel unnt þeim sigurinn í tilefni þessara tímamóta,“ segir Helgi Árnason, formaður Skákdeildar Fjölnis og liðsstjóri Fjölnismanna.


Þetta var síðari hluti Íslandsmótsins og kepptu 400 skákmenn í fimm deildum. Þrátt fyrir sigur Eyjamanna á stigum þá hlaut A-sveit Fjölnis fleiri vinninga, en það eru stigin sem telja. 

A-sveiti Fjölnis. Þetta er firnasterk sveit sem landaði Íslandsmeistaratitli skáksveita bæði árin 2024 og 2025 og átti því titil að verja.

B-SVEIT FJÖLNIS NÝLIÐI Í 1. DEILD

Í 1. deild var B-sveit Fjölnis nýliði og barðist við að halda sæti í deildinni. Það tókst naumlega, munaði einum vinningi sem dugði.

 

Skákdeild Fjölnis er eina skákfélagið sem sendir stúlknasveit á Íslandsmótið. Stelpurnar stóðu sig afar vel og unnu t.d. síðustu umferðina 5-1. 


Að sögn Helga Árnasonar hentar Rimaskóli vel fyrir svo fjölmennt mót sem þetta enda hefur keppnin verið haldin í skólanum meira og minna öll árin frá 2007. 


Fjáröflun Fjölniskrakka sá um veitingareksturinn ásamt foreldrum og þar var glæsilega að verki staðið og náðist ágóði sem dugir til að sækja alþjóðlegt skákmót í Svíþjóð í september. 


„Við óskum Taflfélagi Vestmannaeyja til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn á þessu aldarafmæli félagsins og þökkum öllum þátttakendum fyrir frábæra og fjölmenna skákhelgi hér í Grafarvogi,“ segir Helgi Árnason.


Eftirfarandi skákmenn skipuðu A-sveit Fjölnis: Litháísku landsliðsmennirnir Valery, Paulius, Titas og Tomas og Íslendingarnir Dagur Ragnarsson, Bragi Þorfinnsson, Sigurbjörn J Björnsson og Oliver Aron Jóhannesson.  - JGH 

Um 400 skákmenn hvaðanæva af landinu mættu í Grafarvoginn um nýliðna helgi.

Stúlknasveit Fjölnis. Skákdeild Fjölnis er eina skákfélagið sem sendir stúlknasveit á Íslandsmótið.

B-sveit Fjölnis hélt sæti sínu í 1. deild eftir harða keppni.

A-sveit Fjölnis fékk silfrið núna eftir tvö gullár 2024 og 2025. Helgi Árnason, formaður Skákdeildar Fjölnis og liðsstjóri, er lengst til vinstri en Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, lengst til hægri.