Kvikmyndir

Eftir Jón G. Hauksson 18. mars 2025
Það er vel til fundið hjá Sambíóunum í Egilshöll að sýna stórmyndina Crimson Tide með stórleikaranum Gene Hackman hinn 26. mars nk. Það eru nákvæmlega þrjátíu ár síðan myndin var fyrst frumsýnd og telst hún ein af betri myndum Hackmans í stórri flóru stjörnumynda hans. Hinn leydardómsfulli dauðdagi þeirra hjóna hefur verið stöðugt fréttaefni í fjölmiðlum vestanhafs en dánarorsök Hackmans virðist hafa verið hjartaáfall en hann var bæði hjartveikur og mjög illa haldinn af alzeimer-sjúkdómnum. Rauna hefur andlát Hackmans orðið kveikja að mjög mikilli umræðu um þennan erfiða sjúkdóm sem hrjáir 7 milljónir Bandaríkjamanna en rætt er um að þeir reiði sig á um 11 milljónir náinna ættingja sinna í glímu hversdagsins. 

Eftir Jón G. Hauksson 7. nóvember 2025
Það verður mikið um að vera í Grafarvogskirkju í sérstakri hátíðarguðsþjónustu sunnudaginn 16. nóv. klukkan 11 að morgni, þegar haldið verður upp á glæsilegt 25 ára vígsluafmæli Grafarvogskirkju. Heiðursgestur verður forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir. Grafarvogskirkja er sérlega glæsileg bygging og það voru margir sem lögðu hönd á plóginn í sjálfboðaliðsstarfi þegar hún var vígð 18. júní árið 2000. 25 ára vígsluafmælið um næstu helgi verður hið veglegasta. Vígðir þjónar, kórar og tónlistarfólk kirkjunnar taka þátt í hátíðarguðsþjónustunni. Léttar veitingar verða í boði sóknarnefndar og eru Grafarvogsbúar svo sannarlega hvattir til að mæta í þessa glæsilegu hátíðarguðsþjónustu og fagna merkum áfanga í sögu sóknarinnar. - JGH