Við Grafarvogsbúar getum verið stoltir af henni - til hamingju Emilía Embla Berglindardóttir
Við Grafarvogsbúar getum svo sannarlega verið stoltir af þessari afreksdömu, Emilíu Emblu B. Berglindardóttur, skákkonu Fjölnis 2025, en hún vann í gær titilinn Stúlknameistari Reykjavíkur 2026.
Til hamingju Emilía Embla og Skákdeild Fjölnis þar sem unnið er kraftmikið og einstakt starf undir handleiðslu Helga Árnasonar, fyrrum skólastjóra í Rimaskóla.
Fram kemur á FB-síðu Skákdeildar Fjölnis að Emilía hafi teflt í opnum flokki á Stúlkna-og drengjameistaramóti Reykjavíkur og átti að venju góðan dag við taflborðið og uppskar bikara og titilinn Stúlknameistari Reykjavíkur 2026.
Hún bætti 50 skákstigum við ELÓ-stigin sín.
Ekkert annað en stórkostlegt og til hamingju aftur. - JGH

Stúlknameistari Reykjavíkur 2026.

