Dagur Ragnarsson Fjölni efstur Íslendinga á Reykjavik Open 2026 í Hörpu fyrir lokadaginn

30. mars 2026

Dagur Ragnarsson, skákmaður Fjölnis 2025 og 2026, er nú orðinn efstur Íslendinga á Reykjavik Open 2026 í Hörpu. Þetta kemur fram hjá Helga Árnasyni, formanni skákdeildar Fjölnis, á FB-síðu hans fyrr í kvöld.


„Dagur (2.376 Elo stig) er kominn með 6 vinninga af 8 mögulegum eftir að hafa lagt Kazakann og stórmeistarann Alisher Suleymenov (2.523 Elo stig) að velli í næstsíðustu umferð mótsins. Aldeilis vel gert hjá Degi.


Andstæðingurinn Suleymenov Alisher er hvað þekktastur fyrir að hafa unnið Magnus Carlsen nýlega í eftirminnilegri skák.


Koma svo Dagur í lokaumferð mótsins sem tefld verður á morgun, þriðjudag 31. mars,“ segir Helgi Árnason í FB-færslu sinni fyrr í kvöld.


Svo sannarlega glæsilegur árangur hjá þessum öfluga skákmanni okkar Grafarvogsbúa. - JGH

Dagur Ragnarsson, skákmaður Fjölnis 2025 og 2026. Hann er efstur Íslendinga á mótinu fyrir lokaumferðina.