Hjónin í Loftkastalanum, sem eiga í deilu við borgina, útbúa Pallavagninn á hverju sumri

4. maí 2026

Ýmsir hafa sent inn fyrirspurnir til okkar um hvers konar fyrirtæki Loftkastalinn í Gufunesi sé og hvaða leikmyndir þau hjón, Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir, hafa unnið að. Líklegast er þekktasta leikmynd þeirra Pallavagninn svonefndi, þ.e. vagninn sem Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður ekur um á Gleðigöngunni ár hvert.


Núna hefur deila þeirra hjá við Reykjavíkurborg staðið yfir í sjö ár og snýst um hæðarkóta og hæðarmælingar en nýleg matsskýrsla óháðs dómkvadds matsmanns rennir stoðum undir sjónarmið þeirra hjóna. Þau hjón telja að borgin sýni þeim valdníðslu.

Pallavagninn, vagn Páls Óskars Hjálmtýssonar, er líklegast þekktasta verk þeirra hjóna í Loftkastalanum en þau útbúa leikmyndina á vagninum á hverju ári fyrir tónlistarmanninn.

Eins og fram hefur í komið í fréttum okkar að undanförnu þá hafa þeir Orri Steinarsson, einn helsti hönnuður deiliskipulagsins í Gufunesi, og Þorvarður Björgúlfsson, eigandi Kukls, lagt sjónarmiðum hjónanna lið. Sjá bréf Orra hér og viðtalið við Þorvarð hér.


Hilmar Páll er löngu þekktur sem leikmyndasmiður og vann um árabil leikmyndir í auglýsingum fyrir Saga Film, þá vann hann leikmyndina í Fangavaktinni og fleiri kvikmyndum.


Þá vann Hilmar Páll í um þrjú ár við gerð Óbyggðasetursins sem er í Fljótsdal og eitt af þekktari söfnum landsins.


Af síðari tíma verkum má nefna að Loftkastalinn byggði nýju kirkjuna í Grímsey en hún var vígð í ágúst á síðasta ári. Sú gamla varð eldi að bráð í september árið 2021. - JGH

Þau hjón í Loftkastalanum reistu kirkjuna í Grímsey en hún var vígð í ágúst á síðsta ári.

Hilmar Páll vann ásamt fleirum í þrjú ár við að koma Óbyggðasetrinu í Fljótsdal á laggirnar en safnið hefur vakið mikla athygli.

Óbyggðasetrið í Fljótsdal er magnað safn.

Munir og minjar í Óbyggðasetrinu en það er innst inni í Fljótsdal.

Hjónin Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir, eigendur Loftkastalans, hafa átt í deilu við Reykjavíkurborg í sjö ár og ekki er útlit fyrir friðarsamkomulag. (Sjá hér).