Fyrirtækið Kukl mótmælti líka en hækkaði hluta lóðarinnar. „Augljóst að nýir hæðarkótar voru rangir. Þetta skipti mig minna máli“
Þorvarður Björgúlfsson, eigandi fyrirtækisins Kukl, skrifaði ásamt Ingu Lóu Guðjónsdóttur í Loftkastalanum harðort bréf til borgarfulltrúa hinn 23. júní 2020 um gatnagerðina í Gufunesi og að hæðarkótar við fyrirhugaða götulagningu - Jöfursbásinn - í nýja hverfinu væru rangir og að verkfræðistofan Verkís hefði ekki unnið „heimavinnuna sína“.
Þorvarður segir við Grafarvogur.net að hann hafi tekið þátt í að skrifa umræddan tölvupóst til borgarfulltrúanna árið 2020 með fulltrúum Loftkastalans og að hans mati fari ekkert á milli mála að lagt var upp með ranga hæðarpunkta við skipulag nýju byggðarinnar og að ekki hafi verið tekið tillit til þeirra bygginga sem voru á svæðinu fyrir og tilheyrðu gömlu Áburðarverksmiðjunni, eins og bygginga Loftkastalans og Kukls.
FÓR EKKERT Á MILLI MÁLA - ÞETTA BLASTI VIÐ
„Það fór ekkert á milli mála að hæðarkótarnir voru rangir. Hjá Kukli var nýja gatan 60 cm hærri en planið við húsið okkar,“ segir Þorvarður sem segist sem minnst vilja blanda sér inn í þá deilu sem staðið hefur árum saman á milli Loftkastalans og borgarinnar. Mestu skipti að hún leysist úr því sem komið er.

Bílaplanið við gömlu byggingu Kukls. Nýi vegurinn - hinn frægi Jöfursbás - vel fyrir ofan planið.
„Ég sá í hvað stefndi og hækkaði hluta lóðarinnar hjá mér fyrir framan nýju viðbygginguna sem ég byggði en náði að milda hallann niður að gamla húsinu og setja þar niðurföll sem hafa dugað hingað til. Þetta er leiðinlegur halli en ekkert sem skiptir mig máli. Þess utan var vegurinn fyrir framan hjá mér lækkaður aðeins þannig að þetta hefur bjargast hjá mér. Ég ákvað að láta þessa lausn duga því þessi hæðarmunur hafði miklu minni áhrif hjá mér en Hilmari og Ingu Lóu í Loftkastalanum. Þetta skipti mig minna máli þar sem lóð Kukls er meira á útjaðri svæðisins.“
Þorvarður segist ekki skilja að það ekki sé hægt að finna lausn á þessari deilu á milli Loftkastalans og borgarinnar. „Það er eiginlega glórulaust að þessi deila standi enn yfir eftir allan þennan tíma. Það verður að leysa hana. Nýja byggðin hér í Gufunesi fer ekkert og borgin verður einhvern veginn að koma til móts við þau Hilmar og Ingu Lóu.“ - JGH

„Það fór ekkert á milli mála að hæðarkótarnir voru rangir,“ segir Þorvarður. Hjá Kukli var nýja gatan - Jöfursbásinn - 60 cm hærri en planið fyrir framan gömlu byggingu Kukls sem tilheyrði áður Áburðarverksmiðjunni.

Kukl reisti glæsilega nýbyggingu við gamla hús Áburðarverksmiðjunnar og gat hækkað bílaplanið þar fyrir framan.

Við vesturenda nýbyggingar Kukls var hallinn mildaður niður að gömlu byggingunni.

Það reynir nú talsvert á þetta niðurfall fyrir framan gömlu byggingu Kukls - sem áður tilheyrði gömlu Áburðarverksmiðjunni.


