Enn virðist langt í fyrsta slátt - fyrir sjö árum var fyrsti sláttur hjá mér 4. maí
Það er rætt um að vorið hristi veturinn af sér eftir næstu helgi. Vonandi rætist það. Það er líka kominn tími til.
Ég fór yfir það hvenær ég hefði yfirleitt verið með fyrsta slátt í garðinum hjá mér og sé að fyrir nákvæmlega sjö árum, eða 4. maí árið 2019, var vélin ræst og slegið í gegn. Oft hefur fyrsti sláttur verið í kringum miðjan maí.
Erfitt er að spá í fyrsta sláttinn að þessu sinni. En ég efast um að það verði fyrr en eftir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi.
Vel á minnst, það eru ekki nema tólf dagar í kosningar.
Ef til vill verður vélin ræst fyrir þann tíma ef loforð flokkanna um betra veður gengur eftir. Eða standast ekki öll loforð þeirra yfirleitt? - JGH

Fyrir sjö árum þegar fyrsti sláttur var 4. maí. Núna sýnist enn langt í land með að vélin verði ræst og eflaust höktir hún í fyrstu eftir vetrardvala.


