Bíldshöfðinn - ekkert gefið eftir og unnið hörðum höndum 1. maí

2. maí 2026

Það vakti á vissan hátt athygli þegar ekið var um Bíldshöfðann á sjálfum verkalýðsdeginum 1. maí að þar var ekkert gefið eftir í byggingarvinnu og allt í fullum gangi - ekki síst hjá svonefndum járnamönnum.


Snúningur var á byggingakrananum og vinnusemin allsráðandi.


Einhvern tíma hefði það þótt saga til næsta bæjar að unnið væri í byggingarvinnu á hinum alþjóðlega verkalýðsdegi.


Tímarnir breytast og vinnutíminn með. - JGH

Hér við Bíldshöfða 9a er verið að reisa þessa glæsilegu byggingu og menn að störfum á hinum alþjóðlega verkalýðsdegi.

Unnið hörðum höndum og engu skiptir hvort dagurinn sé föstudagur eða föstudagurinn 1. maí.