Einn þeirra er vann deiliskipulagið í Gufunesi staðfestir frásögn eigenda Loftkastalans
Það er athyglisvert að einn þeirra sem vann að deiliskipulaginu í Gufunesi, Orri Steinarsson sem starfar í Hollandi, staðfestir frásögn þeirra hjóna Hilmars Páls Jóhannessonar og Ingu Lóu Guðjónsdóttur, eigenda Loftkastalans, sem keyptu lóðina að Gufunesvegi 34 í byrjun janúar 2018 þegar allt gekk út á að gera Gufunesið að miðpunkti kvikmyndaframleiðslu hérlendis. Orri býr og starfar í Hollandi.
Grafarvogur.net er með undirritað bréf frá Orra frá því 25. ágúst 2021 þar sem fram kemur að hann hafi unnið fyrir hönd fyrirtækisins JVANTSPIJKER & PARTNERS að deiliskipulagi á svæði Gufuness fyrir Reykjavíkurborg þegar deiliskipulagið var auglýst og seinna staðfest. Við birtum hér bréf Orra um málið.

Eigendur Loftkastalans keyptu Gufunesveg 34, þrjú gömul hús Áburðarverksmiðjunnar ásamt lóðarréttindum og byggingarétti í byrjun ársins 2018. Orri blandaðist inn í málið 2021.
Í bréfi Orra segir:
„Í kjölfar fyrstu verðlauna í hönnunarsamkeppi sem haldin var 2016 þá fékk jvantspijker & partners það hlutverk að vinna deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga svæðisins, svokallað kvikmyndaþorp, sem gerir ráð fyrir blandaðri byggð með áherslu á skapandi iðnað og hagkvæmum íbúðum.
Skipulagið var unnið í samstarfi við breiðan hóp hagsmunaðila sem voru þegar komnir á svæðið, eða voru með lóðarsamninga/lóðarvilyrði hjá Reykjavíkurborg. Margir samráðsfundir með hagsmunaaðilum voru haldnir af hálfu verkkaupa.
Rekstrarforsendur Loftkastalans voru frá upphafi skýrar: Að geta rennt stórum hlutum hindrunarlaust á milli húsa. Hvað Loftkastalann varðar var vel upplýst af þeirra hálfu að til stóð að útbúa verkstæði á lóð þeirra m.a. fyrir framleiðslu á og flutning á stærri leikmyndum og byggingarefni.
Þá lét Loftkastalinn hanna stækkun á húsum sem fyrir voru og var ráðgert að svipuð gólfhæð yrði á öllum fasteignum lóðarinnar. Aðkoma að núverandi húsum átti að haldast óskert þar sem hægt verður aka inn í port af Hilmisbási, jafnramt sem aðkoma að bílakjallara var ráðgerð frá Þengilsbási við norðvestur-horn nýju byggingarinnar.
Einnig var mikilvægt að núverandi bílastæði og innkeyrslur yrðu nýtt áfram. Þessar teikningar voru m.a. notaðar í kynningarefni á deiliskipulagi svæðisins. Við gerð sniðmynda í deiliskipulagsuppdrætti var gert ráð fyrir að lóð Loftkastalans yrði nokkuð slétt í samræmi við framangreint.
Eitthvað hefur farið úrskeiðis því fyrirhugaðir hæðarkótar í landinu umhverfis lóð Loftkastalans eru ekki í samræmi við þessar rekstrarforsendur, né eru þeir í samræmi við þá samráðsfundi, né kynningar sem haldnar voru með Loftkastalanum.“
Og undir þetta ritar Orri Steinsson. - JGH

Verðlaunatillagan af Gufunesi þar sem gert var ráð fyrir öflugu kvikmyndaþorpi.

Yfirlýsing Orra Steinarssonar.


