Samgöngustjóri gaf í skyn að ljósin við Strandveg og Rimaflöt yrðu færð í fyrra horf

10. febrúar 2026

Umferðarmálin eru eitt af heitustu málunum í Grafarvogi og hafa verið það um langt skeið. Allir þekkja framkvæmdirnar við Höfðabakkann en ef það eru einhver gatnamót og umferðarljós sem Grafarvogsbúar eru núna „sturlaðir yfir“ eru það gatnamótin við Strandveg, Rimaflöt og Gufunesveg en þar var umferðarljósunum breytt um helgina og hafi verið tafir fyrir á álagstímum þá eru þarna langar biðraðir ökutækja og tafir um hábjartan daginn.


Að sjálfsögðu var komið inn á þessi mál með Heiðu Björg borgarstjóra á fundinum á bókasafninu í gær - og það fór ekki fram hjá neinum hver hugur fundarmanna var til þessara umrferðarljósa.


Einn fundarmaður spurði mjög undrandi hvernig stæði á því að borgin hefði farið í að byggja heilt hverfi í Gufunesi án nokkurrra innviða, þarna væri strætó í formi leigubílaþjónusta obbann af deginum og óskiljanlegt væri að umrædd gatnamót, Strandvegar og Rimaflatar, hefðu ekki farið í alvöru framkvæmd fyrir löngu síðan.


Grafarvogur.net hefur fjallað oft um þessi gatnamót og breytinguna á umferðarljósunum með beygjuljósum sem tefja og eru að gera alla vitlausa. Þið hafið hunsað Gufunesið og þessi gatnamót og það bitnar á öllum Grafarvoginum,“ áréttaði þá fundargesturinn.

Umrædd gatnamót Strandvegar, Rimaflatar og Gufunesvegar - gatnamót sem hafa gert Grafarvogsbúa brjálaða í umferðinni að undanförnu en ljósunum var breytt um helgina og við það varð hefðbundinn hægagangur enn hægari - og varla hægt að tala um aðra gangtegund en fetið í þeim efnum. (Mynd frá síðasta sumri, augljóslega).

Heiða Björg fékk Guðbjörgu Lilju Erlendsdóttir, verkfræðing og samgöngustjóra borgarinnar, til liðs við sig til að koma í pontu og fara yfir þetta.


Ég veit af þessari röð í morgun og þessum töfum,“ sagði hún - og þá kölluðu fundarmenn óþolinmóðir inn í að svona væri þetta alla daga á álagstímum en væri galið eftir breytingarnar og tafir allan daginn.


„Það var gerð uppfærsla á ljósunum fyrir helgi og það er enn verið að vinna í þeim. Það er verið að breyta umferðarljósastillingunni til að auka öryggið og setja upp beygjuljós,“ sagði Guðbjörg Lilja og bætti við að komið hefði ábending um það úr hverfinu að bílar sem væru að beygja niður í Gufunesið biðu þar og tefðu umferfðina. Þess vegna hefði verið farið í þessar framkvæmdir.


Hún bætti svo við þegar fundargestir sóttu að henni: „Nú, þessi breyting er greinilega ekki að virka.


Hún ræddi síðan gönguljósin á þessum gatnamótum sem hefðu einnig fengið vissan forgang og tefðu eðlilega fyrir umferð bíla. „Þetta er verk í vinnslu og eins og gjarnan er þurfum við að finna út úr þessu og við tökum mark á öllum ábendingum sem berast og þessi umræða hér er hluti af þeirri vinnu og nú heyri ég að þetta gangi ekki nægilega vel.


Ekki var hægt að skilja orð hennar öðru vísi en að þessi umferðarljós yrðu færð í fyrra horf en fundarmenn sögðu að þarna yrði að gera miklu meira og það strax, fara í alvöru framkvæmdir, gera beygjuvasa, jafnvel hringtorg; þ.e. allt til að liðka til fyrir umerðinni um þessi gatnamót.


Þá sagði Guðbjörg Lilja varðandi framkvæmdir við Höfðabakkann að þá væri slæmt að ekki hefði tekist að ljúka þeim fyrir veturinn og bætti við að ný umferðarljós við gatnamót Höfðabakka-Bíldshöfða kæmust ekki í gagni fyrr en í sumar en þar þyrfti að grafa talsvert og leggja nýjar lagnir.  - JGH

Heiða borgarstjóri fékk Guðbjörgu Lilju Erlendsdóttir, verkfræðing og samgöngustjóra borgarinnar, til að fara betur yfir samgöngumál og umferðarmannvirki í Grafarvoginum og umrædd ljós við Strandveg, Rimaflöt og Gufunesveg urðu fljótt mál, málanna. „Nú, þessi breyting er greinilega ekki að virka,“ sagði Guðbjörg Lilja um uppfærsluna á ljósunum við þessi gatnamót.