Algjört rugl. Ljósin skapa stórhættu. Fólk brjálað og ekur núna eftir gangbrautinni

9. febrúar 2026

Það fer ekki á milli mála að breytingin á umferðarljósunum við Strandveg og Rimaflöt fer illa í ökumenn og skapa núna stórhættu í umferðinni - í stað þess að auka öryggið. Ökumenn fara hver af öðrum yfir grasbalann við Strandveg og aka eftir gangbrautinni í norðurátt - sem og yfir á Gylfaflöt.


Ökumaður sem var á leið í norðurátt hafði samband við Grafarvogur.net kl. 14:15 og sagðist hafa beðið í óratíma áður en hann komst að ljósunum við Gullinbrú og Hallsveg - og að umferðin hefði vart mjakast þótt það væri grænt ljós.


Hann sagði að þetta væri engu lagi líkt og hvað þá á þessum tíma dags, upp úr klukkan tvö að degi til. Þá sagði hann að ökumenn fjögurra bíla hefðu misst þolinmæðina í biðröðinni og ekið yfir grasbalann og eftir gangbrautinni - og það skapaði að sjálfsögðu stórhættu.


„Þetta var nú í rugli fyrir en þessi breyting á ljósunum við Strandveg og Rimaflöt er algjört rugl. Hverjir ráða þessu eiginlega?,“ bætti hann við bálreiður í biðröðinni. - JGH

Umferðarljósunum var breytt í gærdag og Grafarvogsbúar eru að upplifa bið sem aldrei fyrr. (Mynd úr safni.)

Grafarvogur.net hefur margoft skrifað um umferðarljósin og gatnamótin við Strandveg og Rimaflöt. Breytingunni var skellt á í gær. Nú eru umferðin farin að fljóta yfir grasbala og eftir gangbrautinni við Strandveg - og söuleiðis yfir á Gylfaflötina. (Mynd úr safni).

Umferðarteppan var nú nógu mikil fyrir en núna hafa ökumenn misst þolinmæðina. All í rugli klukkan tvö eftir hádegi á virkum degi. (Mynd úr safni frá sl. sumri).