Trausti vildi að samgöngustjóri ynni alla nóttina við að breyta ljósunum við Rimaflöt - og ætlið þið að girða Spöngina af?

10. febrúar 2026

VERÐUR SPÖNGIN GERÐ AÐ VIRKI? Tausti Harðarson, íbúi í Grafarvogi, kvaddi sér hljóðs á fundinum með Heiðu Björg borgarstjóra í bókasafninu í Spönginni í gær og sagði að sér fyndist mikið metnaðarleysi einkenna umferðarmál í Grafarvogi og sagði að yfir 18 þúsund íbúar byggju í Grafarvogi og fyrst samgöngustjóri viðurkenndi að breytingin á umferðarljósunum við gatnamót Strandvegar og Rimaflatar væru klúður þá vildi hann að samgöngustjóri bretti upp ermarnar og færi þegar í málið.


Ég myndi vilja sjá hana vinna í alla nótt við að laga umferðarljósin. Málið er að við erum mjög óánægð með það hvernig þið komið fram við okkur í umferðarmálum,“ sagði Trausti mjög ákveðinn og uppskar mikið lófaklapp.


ÆTLIÐ ÞIÐ AÐ GIRÐA SPÖNGINA AF?

Trausti var ekki hættur - síður en svo - og ræddi um fyrirhugaða stækkun Spangarinnar, sem hefði mælst illa fyrir, en um risaframkvæmd og þarna yrði þétting byggðar með íbúðarhúsnæði í allt að fimm hæða blokkum og þetta yrði klasi sem ætti efir að teygja sig og taka af stóran hluta bílastæða við Borgarholtsskóla.


Við þetta fer stór hluti bílastæða á svæðinu,“ sagði Trausti ákveðinn. „Ef þetta gengur í gegn hjá ykkur þá fer enginn lengur í Spöngina að versla. Það er ljóst; það fer enginn í verslunarmiðstöð þar sem sárafá bílastæði eru.“


Hann spurði svo: „Ætlið þið virkilega að leyfa þessu að fara í gegn? Ætlið þið að girða Spöngina af hér? Þetta hljómaði raunar hjá honum eins og til stæði að byggja stórt virki á svæðinu - slíkar eru framkvæmdirnar. (Sjá teikningar og tengil hér).


Ja, girða þetta af, er það nú ekki of mikið sagt?“ svaraði Heiða og sagði svo: Við skrifuðum undir viljayfirlýsingu um daginn varðandi Spöngina við Reiti og þessar framkvæmdir á ennþá eftir að skipuleggja - og þið munið taka þátt í því. Ég held að það yrði gott fyrir þennan verslunarkjarna að fá hér stækkun og fleira fólk á svæðið og meiri þjónustu. Ég vona að þetta muni opna hverfið en ekki girða það af - og gera það meira aðlaðandi.“

Spöngin. Þéttingu byggðar laumað inn hjá Reitum í Spönginni. Reitir gera ráð fyrir að byggðar verði 140-170 íbúðir í 2-5 hæða blokkum á svæðinu. Reitir stefna að því að nýtt byggingarmagn verði 17.200 fermetrar, þar af 12.500 fermetrar af íbúðarrými.

Fundargestur greip fram í og gerði athugasemdir við þetta hjá Heiðu og sagði að miðað við þær teikningar sem væru komnar þá eru þið að taka helling af bílastæðum í burtu.


Ég hef ekki séð neinar teikningar, þær eru ekki til, þetta er allt í vinnslu,“ svaraði Heiða.


Fundarmaðurinn greip þá fram í og sagði: „Þið eruð alltaf að tala um samráð, við erum að tala um fullt af hlutum sem þið hafið lofað að yrði í samráði við okkur, eins og í umferðarmálum, þéttingu byggðar og svo þetta mál hér með Spöngina. Það hefur ekki verið neitt samráð við okkur. Þannig að er þetta ekki bara einhver fagurgali stjórnmálanna - sífellt verið að ræða um samráð sem er svo ekki neitt?


Heiða svaraði þá og áréttaði frekar um Spöngina: „Það er ekki búið að skipuleggja þetta. Það er búið að skrifa undir þessa viljayfirlýsingu og ég vona að það sem kemur út úr þessu verði spennandi og gott.


- Fer breytingin á Spönginni þá í grenndarkynningu? - var spurt.

Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjori umhverfis- og skipulagssviðs, stendur hér við hlið Steins Jóhannssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Þorsteins Gunnarssonar borgarritara á fundinum í gær.

Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, kom þá Heiðu borgarstjóra til aðstoðar varðandi umræðuna um Spöngina og sté í pontu.


Það er fasteignafélagið Reitir sem eiga Spöngina og hafa hug á því að bæta við hana og komu til máls um það við borgina og skrifað var undir viljayfirlýsingu; uppbyggingarsamkomulag. Það sem við gerum svo er að vinna og gera skipulagslýsingu að breytingu að ósk þeirra. Þessi skipulagslýsing fer í samráðsgátt. Svo hefst deiliskipulagið sem fer líka í samráðsgátt. Þetta verður ekki grenndarkynning heldur auglýst og hagaðilum sem búa næst Spönginni verður sent bréf. Þannig að þetta er bara fyrsta skrefið. Þetta er tillaga komin frá Reitum sem eru lóða- og fasteignaeigendur á svæðinu og okkur ber að taka ósk þeirra til stjórnsýslulegrar meðferðar.“


HAFIÐ ÞIÐ EKKERT LÆRT AF GRÆNA GÍMALDINU?

Fundargestur reis þá upp og sagði: „Hafið þið ekkert lært af Græna gímaldinu sem þið byggðuð í Breiðholti. Ég bý í blokk við Spöngina og við komum til með að missa allt sólarljós við þær tillögur sem hafa verið kynntar. Mér líst ekkert á þetta.“


Þá svaraði Ólöf: „Það er ekki rétt í þessu tilviki, það liggja ekki fyrir neinar endarlegar tillögur. Reitir eru með ósk um að byggja upp og svo gerum við skipulagslýsingu þar sem fram koma allar forsendur og síðan fer þetta í lögbundið samráð. Ég lofa þér því að þetta mun ekki fara fram hjá þér.“


- Það er búið að teikna þessar tillögur Reita! - greip þá fundargesturinn inn í „og kynna þær með teikningum.


Ég get ekki ábyrgst það sem Reitir gera. Auðvitað skoða Reitir tækifæri eins og öll önnur fasteignaþróunarfélög gera,“ bætti Ólöf við.


Verður þetta samt ekki allt á forsendum þeirra,“ svaraði þá fyrirspyrjandi.


Þetta var kjarninn í umræðunni um Spöngina á fundinum og stækkun hennar. - JGH

Trausti Harðarson, íbúi í Grafarvogi, hér fyrir miðri mynd lét svo sannarlega til sín taka á fundinum og hjólaði í borgarstjóra varðandi stækkun Reita á Spönginni og það uppbyggingarsamkomulag sem borgin hefði gert við Reiti og Heiða hefði sjálf undiritað.

Hér má sjá aðra afstöðumynd af hugmyndum Reita að stækkuninni í Spönginni. Svæði merkt 5 er húsnæði Hagkaupa, nr. 6 þar sem bókasafnið er - og nr. 1 er þar sem Bónus er núna. Takið eftir byggingunum lengst til hægri sem teygja sig inn á lóð Borgarholtsskóla og eru við beygjuna fyrir neðan skólann.

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri við undirritun samkomulagsin. Auk uppbyggingar við Spöngina samþykkti borgarráð samkomulag við Reiti er varðar Suðurlandsbraut 56 (Metróreit) og Nauthólsveg 50–52 (Loftleiðareit).