Gömlu ljósin ennþá við Höfðabakka og Bíldshöfða - ljósin tímastillt við Höfðabakkann
Búið er að skipta út gamla ljósabúnaðinum við fern gatnamót af fimm við Höfðabakkann, skv. svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Grafarvogur.net. Enn á eftir að skipta út gömlu umferðarljósunum við gatnamót Bíldshöfða og Höfðabakka.
Þá kemur fram í svarinu til okkar að nýju umferðarljósin við Höfðabakkann sem eru komin í gagnið séu tímastillt - og það séu mismunandi stillingar á ljósunum yfir sólarhringinn.
„Eins og er eru nokkrar mismunandi stillingar í gangi eftir tíma dags. Verið er að safna upplýsingum um flæðið eins og það er núna og er stillingum breytt þegar og ef þörf er talin á,“ segir í svari borgarinnar til Grafarvogs.net.

Framkvæmdirnar við Höfðabakkann hófust sl. sumar og hafa svo sannarlega ekki farið framhjá Grafarvogsbúum - enda hafa þær dregist verulega á langinn og ennþá er verið að ganga frá helsta jarðraskinu.
Grafarvogur.net
er sá fjölmiðill landsins sem hefur fjallað langmest um framkvæmdirnar við Höfðabakkann frá því þær byrjuðu um mitt sumar. Upphaflega stóð til að skipta út aðeins út gömlu umferðarljósunum en í framhaldinu var tekin ákvörðun um að lengja og breikka umferðareyjarnar til að auka öryggi gagandi og hjólandi - þótt flæðið sýni að umferð bíla sé algerlega yfirgnæfandi við þessa miklu umferðargötu.
Sem sagt: Verkið hefur gengið út á að setja upp nýjan ljós- og stýribúnað og að auki skynjara við gatnamótin - og er hann kominn í gagnið við Bæjarháls, Höfðabakkabrú, Dvergshöfð og Stórhöfða.
Ljósin eru hins vegar ennþá tímastillt, þ.e. fyrirfram ákveðnar mínútur á hvert ljós - og eru mismunandi stillingar í gangi innan sólarhringsins, sem tekur væntanlega mið af skynjurunum. - JGH

Háir staurar með nýjum ljósbúnaði og skynjurum - sem mæla flæðið - setja svip sinn á öll gatnamótin við Höfðabakkann þar sem framkvæmdirnar hafa staðið yfir í margar mánuði. Ljósin eru hins vegar tímastillt og ákveðnar mínútur á hvert ljós - en engu að síður eru mismunandi stillingar á ljósunum innan sólarhringsins.

Gráu kassarnir við gatnamótin geyma hugbúnaðinn og taka við upplýsingum frá skynjurum til að mæla flæðið. Tímastillingar eru engu að síður ennþá við öll gatnamótin þó þær séu mismunandi innan dagsins og sólarhringsins.

Þetta eru skynjararnir sem hafa verið settir upp.

Enn á eftir að skipta út gömlu umferðarljósunum við gatnamót Bíldshöfða og Höfðabakka.

