Hulunni svift af búnaðinum - allt grænt í norður meðan allt rautt í suður
Plastið er enn á en núna hefur hulunni verið svift af nýju umferðarljósunum við gatnamót Standvegar, Rimaflatar og Gufunesvegar.Eins og við sögðum frá fyrr í vikunni eru nýju beygjuljósin til að auka öryggið en munu óhjákvæmilega hægja aðeins umferðinni á mesta annatímanum. Það verður meiri bið á rauðu.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg til Grafarvogur.net þá verður umferðarljósastýringunni breytt á þá leið að þeir bílar sem aka í norður eftir Strandvegi fá allir grænt á sama tíma; þ.e. beygjuljósin til vinstri í Gufunesið, áfram norður Strandveginn og svo þeir sem beygja til hægri inn á Rimaflöt. Umferðin á móti, úr norðri, stöðvast öll á meðan á rauðu ljósi.
Þeir sem aka Strandveginn úr norðri á suðurleið fá sömuleiðis allir grænt á sama tíma; þ.e. beygja til vinstri inn á Rimaflöt, áfram í suðurátt og svo þeir sem beygja til hægri inn á Gufunesveginn. Umferðin á móti, úr suðri, stöðvast öll á meðan á rauðu ljósi.
Síðan eru það þeir sem aka frá Rimaflötinni og Gufunesvegi fá áfram grænt ljós samtímis - eins og verið hefur - og umferðin úr bæði suðri og norðri eftir Strandveginum bíður á meðan á rauðu ljósi.
Umferðin eftir Strandveginum úr suðri og norðri mun því ekki renna samtímis yfir gatnamótin, líkt og áður. - JGH

Það verður ekki grænt ljós samtímis fyrir umferðina eftir Strandvegi sem kemur úr gagnstæðri átt. Þegar grænt verður í suðurátt (eins og á myndinni) verður framvegis allt rautt hinum megin, þ.e. fyrir þá sem eru á norðurleið eftir Strandveginum. Svo og öfugt.

Svona hefur þetta verið; grænt samtímis fyrir þá sem aka í gagnstæða átt eftir Strandvegi, þ.e. í norður og suður. Þetta breytist núna.

Hér var strætóskýli sett upp alveg við gatnamótin. Ástæðan núna fyrir uppsetningu beygjuljósanna er að þeir sem eru á leiðinni hér til vinstri niður í Gufunes þurfa oft að bíða sem fremstu ökutækin og koma þá í veg fyrir að umferðin norður Strandveginn komist almennilega framhjá. Með öðrum orðum, það vantar pláss þarna til hægri við rauða ljósið - svo fyrra fyrirkomulag gæti gengið.


