Ósigraður! Heimildarmynd um Hilmar Pál í Gufunesi tilnefnd til Edduverðlauna

12. maí 2026

Við höfum fjallað einn fjölmiðla um baráttu þeirra hjóna Hilmars Páls Jóhannessonar og Ingu Lóu Guðjónsdóttur í fyrirtækinu Loftkastalanum í Gufunesi við Reykjavíkurborg en barátta þeirra og stríð við borgina hefur staðið í hvorki meira né minna en sjö ár án þess að hvorugur aðilinn gefi sig.


Fyrir okkur hina almennu íbúa hefur þessa deila á sér birtingarmynd deilu einstaklinga við báknið; embættismannakerfið. Auðvitað er óskiljanlegt að þessi deila sé enn óleyst sjö árum síðar.


En þótt Grafarvogur.net hafi einn fjölmiðla fjallað um þetta stríð að undanförnu þá hafa fleiri rætt við Hilmar. Sjá hér og hér.


Þannig vill til að dóttir hans, Jóna Gréta Hilmarsdóttir, hefur framleitt heimildarstuttmynd um föður sinn og nefnist hún Ósigraður og má sjá myndina hér.


Það sem meira er; myndin er tilnefnd til Edduverðlauna  sem heimildarstuttmynd ársins.


Edduverðlaunin verða afhent í lok maí og verður sýnt frá þeim í beinni útsendingu á RÚV.  - JGH