Tvö umferðarslys við sömu gatnamótin í Bryggjuhverfi með skömmu millibili
Tvö umferðarslys hafa orðið með skömmu millibili í Bryggjuhverfinu að undanförnu, skv. innslagi íbúa á FB-síðu Íbúasamtaka Bryggjuhverfisins.
Bæði slysin hafa orðið við gatnamót Tangabryggju og Sævarhöfða.
Í fyrra skiptið var ekið á hjólreiðarmann og í hinu slysinu slasaðist maður á hlaupahjóli.
Mikil umferð er um Sævarhöfðann og hraðinn þar oft verulegur. Það er aldrei of varlega farið og verða bæði ökumenn og hjólreiðamenn að hafa varann á sér.
Fjöldi hjólreiðamanna úr Grafarvogi fer þarna um á degi hverjum á leið til og frá vinnu.
- JGH

Fjöldi hjólreiðamanna úr Bryggjuhverfi og Grafarvogi fer um þessi gatnamót við Sævarhöfða-Tangabryggju á degi hverjum.

Horft upp að gatnamótunum við Sævarhöfðann-Tangabryggju í Bryggjuhverfinu.


