Þurfum þrjá gervigrasvelli og yfirbyggða stúku - aðstaða Fjölnis bar ekki á góma á hinum líflega íbúafundi í Gufunesi

12. maí 2026

Hann var bæði hressilegur og líflegur fundur Íbúasamtaka Grafarvogs með fulltrúum framboðanna í Reykjavík í Skálanum í Gufunesi á dögunum, líkt og fram kom í frétt Grafarvogur.net af fundinum.


Þar bar aðstöðu Fjölnis hins vegar ekki á góma þótt Stefán Pálsson, Vinstrinu, hefði á orði við lok fundarins að fundurinn þyrfti helst að vera klukkutíma lengri svo hægt væri að ræða um fleiri mál.


„Dalhúsin eru okkar heimili og við viljum einfaldlega fá uppbyggingu þar í samræmi við þá þörf sem liggur fyrir. Við þurfum að hafa að minnsta kosti þrjá gervigrasvelli, yfirbyggða stúku og félagsaðstöðu eins og önnur félög,“ segir Birgir Birgisson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fjölnis þegar Grafarvogur.net ræddi við hann um hvað væri brýnast.


Birgir bætir því við að búið sé að flytja stóran hluta af starfseminni í Egilshöll en þar hafi félagið hvorki heimili né félagsaðstöðu.


„Við eigum þar ekki velli nema hlutdeild í tímum inni í höllinni og útrunnið gervigras á útisvæði. Það hefur verið mikil fjölgun iðkenda undanfarna 18 mánuði hjá okkur og svo er komið að við getum tæplega annað eftirspurn vegna aðstöðuleysis. Gufunesið er að byggjast upp, Keldnalandið er í farvegi, nýtt hverfi að rísa við Korputún og þéttingaráform víðs vegar. Grafarvogshverfið stefnir í að tvöfaldast og aðstaðan er sprungin nú þegar,“ segir Birgir. „Úr þessu þarf að bæta.“

Það er jafnan líf og fjör á leikjum Fjölnis á vellinum við Dalhúsin. Þar vill Birgir að aðstaðan Fjölnis verði stórbætt og félagið fái  þrjá gervigrasvelli til að mæta stóraukinni eftirspurn. Aðstaðan í Dalhúsum sé þegar sprungin og vel það.

Knattspyrnudeild Fjölnis sendi nýverið fyrirspurn á öll framboðin sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum nk. laugardag þar sem óskað var eftir afstöðu þeirra til aðstöðumála deildarinnar.


Framboðin voru beðin um að svara fjórum spurningum:


Hvort þau hefðu kynnt sér aðstöðumálin?

Hvernig þau hyggðust bæta aðstöðuna?

Hvaða tímarammi væri fyrirhugaður?

Hvort þau myndu setja málið í forgang á næsta kjörtímabili?


Hér má sjá svörin frá framboðunum.


Jú, jú, öll framboðin sýna aðstöðuleysi Fjölnis mikinn skilning - en hvað svo? - JGH

Frá leik Fjölniskvenna á síðasta sumri á grasvellinum við Dalhúsin. Þar vantar tilfinnanlega góða yfirbyggða stúku.

Birgir Birgisson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fjölnis.