Vorið er komið og þá hefjast víða framkvæmdir - og hríslast í hrúgur

12. maí 2026

Vorið er komið - þó kalt sé - og þá hefjast víða framkvæmdir utandyra á heimilum. Þá er það blessaður garðurinn. Þar hríslast víða í hrúgur og um mann í leiðinni.


Á morgungöngunni í morgun rakst ég á þessa kröftugu menn frá Íslenskum aðalverktökum, ÍAV, að grafa af mikilli nákvæmni í innkeyrslu. Grafan var nett og ég dáðist að því hvað þetta var gert af mikilli fagmennsku.


Ekki spurðist ég fyrir um hvað þarna væri í gangi - en ætli ekki einhver rör og pípulagnir komi við sögu; mér sýndist það.


Þurfti ekki að vita meira - JGH

Það hríslast víða í hrúgur á vorin og um mann í leiðinni. Þetta kallar á ferð í Sorpu.