Hvorki Pétur né Heiða voru á fundinum og Sanna sat úti í sal. Líflegur fundur í Gufunesi. Minnihlutinn: „Frelsa þarf Reykjavík“
Hann var mjög líflegur fundur Íbúasamtakanna í Grafarvogi með fulltrúum flokkanna í Reykjavík á veitingastaðnum Skálanum í Gufunesi í gærkvöldi. Búið var að auglýsa að allir oddvitar flokkanna myndu mæta en svo varð ekki .
Hvorki Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingar né Heiða borgarstjóri sem skipar annað sæti á lista Samfylkingar létu sjá sig. Þá vakti það líka athygli að Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstri (Vinstri grænir og Vor til vinstri), sat í salnum og fylgdist með en tók engan þátt í umræðunni. Þess í stað var Stefán Pálsson sagnfræðingur mættur fyrir Vinstrið.
Íbúasamtökin kynntu fyrir fundinn afstöðu flokkanna til ýmissa mála er snúa að Grafarvogi og snerist umræðan að stórum hluta um sýn og viðhorf fulltrúa flokka til þeirra mála.
„FRELSA ÞARF REYKJAVÍK“
Það er ljóst að ákveðinn samhljómur var í framsögu og svörum Hildar Björnsdóttur, Sjálfstæðisflokki, Ara Eðvald, Miðflokki og Einars Þorsteinssonar, Framsóknarflokki. Það er ljóst að þessi flokkar leggja mikla áherslu á að „frelsa Reykjavík“ undan áratuga óstjórn Samfylkingarinnar eins og Ari Eðvald, oddviti Miðflokksins, nefndi það á fundinum.
Sótt var nokkuð að Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, og hún spurð af einum fundargesti, Einari Hálfdánarsyni, um það hvort hún ætlaði að snúa sér enn og aftur að Samfylkingunni eftir kosningar líkt og Viðreisn hefði gert í síðustu tvennum kosningum og viðhaldið þannig stjórn Samfylkingar og völdum Dags B. Eggertssonar.
Björg svaraði því ekki afdráttarlaust en benti þó á að miðað við þær miklu breytingar sem hún vildi gera á stjórn borgarinnar og knýja fram væru Pétur og Heiða ekki þau líklegustu til að snúa sér að eftir kosningar til að ná þeim í gegn.
Einar Þorsteinsson svaraði afdráttarlaust. „Það kemur ekki til greina að vinna með Samfylkingunni.“
Grafarvogur.net mun flytja frekari fréttir af fundinum á næstunni. - JGH

Árni Guðmundsson, einn stjórnarmanna í Íbúasamtökum Grafarvogs, stýrði fundinum af röggsemi.

Einar Hálfdánarson, íbúi í Grafarvogi, beindi spurningu sinni að Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, um hvort flokkurinn ætli að snúa sér enn og aftur að Samfylkingunni eftir kosningar líkt og hún hafi gert í tvennum síðustu kosningum.

Fundurinn var hinn líflegasti og Grafarvogsbúar létu bæði sjá sig og í sér heyra.


