Vilja Grafarvogsbúar þetta? Fréttin um Borgarlínu og Gullinbrú hefur verið uppfærð

8. maí 2026

Borgarstjórnarkosningarnar. Samgöngumál og umferðartafir eru Grafarvogsbúum ofarlega í huga. Og það er þetta með Borgarlínuna. Núverandi forsendur hennar gera ráð fyrir að hún fái sérrými þannig að akreinum verður fækkað um tvær yfir Gullinbrú fyrir almenna bílaumferð - og það á líka við um brekkuna og upp að Höfðabakka. Heimild: Sjá Borgarlínu hér skv. Betri samgöngum.


ATH. BETRI SAMGÖNGUR HAFA BREYTT SKJALI


Grafarvogur.net hefur breytt fréttinni þar sem Betri samgöngur hafa breytt skjali og þess er ekki lengur getið að Borgarlínan í Grafarvogi fái sérrými.


Sjá nýja frétt Grafarvogur.net hér.


 KOSNINGAMÁL ÁRIÐ 1998

Í borgarstjórnarkosningunum 1998 var það ein helsta krafa Grafarvogsbúa að fá tvær brýr. Það þurfti sem sagt kosningar til að koma mönnum í skilning um að ein brú dyggði ekki fyrir 20 þúsund manna byggð. Og viti menn; þetta vannst og önnur brú var byggð með tveimur akreinum.


Þar með varð núverandi fyrirkomulag til og Gullinbrú með sínar tvær brýr setur mikin svip á hverfið. Íbúum finnst þeir „komnir heim“ þegar þeir aka yfir brúna á heimleið.


Gert er ráð fyrir að Borgarlínan verði komin í gagnið í Grafarvogi árið 2036 eða eftir tíu ár.  - JGH

Gullinbrú er heiti vegarins og brýrnar eru tvær. En einu sinni var þarna bara ein brú. Það þurfti kosningar (1998) til að hafa þær tvær og fá þessa mynd sem við Grafarvogsbúar könnumst við.

Borgarlínan í Grafarvogi er 5. lotan - Stórhöfði - Spöng. Núverandi forsendur og það sem hefur verið lagt upp með frá upphafi er að Borgarlínan í Grafarvogi fái sérrými.

Lota 5. Þetta eru forsendurnar. Borgarlínan fær sérrými yfir Gullinbrú.