Hér kemur tilurð fréttar um Borgarlínuna og Gullinbrú. Eftir frétt okkar hafa Betri samgöngur breytt skjali og upplýsingum!
Eftir það fjaðrafok sem fréttin um Bogarlínuna og Gullinbrú hefur valdið og þar sem ég hef verið vændur um að dreifa vísvitandi falsfrétt verður hér upplýst hvernig þessi frétt varð til en þess má geta að áður en hún var skrifuð var hún borin undir einn helsta verkfræðing Betri samgangna, Atla Björn Levý, og farið yfir Borgarlínuna í Grafarvogi og víðar - og raunar ýmsa anga Samgöngusáttmálans í símtali við hann.
Ég vann þessa frétt upp úr gögnum á netinu frá Betri samgöngum en ein af spurningum Íbúasamtaka Grafarvogs á fundinum í Skálanum í Gufunesi í fyrrakvöld var hvort flokkarnir vildu þrengja akreinar við Gullinbrú. Ég ákvað að skoða málið.
Á vef Betri samgagna fann ég skjal sem sýndi svart á hvítu að Borgarlínan í Grafarvogi - Lota 5 - fengi sérrými en ekki deilirými. Með öðrum orðum; að það yrðu ruðningsáhrif af Borgarlínunni og akreinum myndi fækka; Borgarlínan hefði forgang.
Þá ákvað ég að hafa samband við Atla Björn og fá nánari upplýsingar um málið og hugsaði með mér að auðvitað hlyti Borgarlínan að fá einhvern forgang með sérrými fyrst á annað borð væri verið að leggja út í þetta millljarða ævintýri í Grafarvogi og sem ætlað er að verði tilbúið 2036. Varla yrði þetta bara risavaxinn strætó sem yrði fastur í umferðarteppu á annatímum.
Atli Björn tók mér mjög vel og benti mér á að vandinn við að skrifa þessa frétt væri sá að það ætti eftir að útfæra Lotu 5 og að margt gæti breyst þegar sú útfærsla færi í gang.
Ég hafði þá á orði við hann að ekki færi á milli mála að skv. skjali Betri samgagna væri gert ráð fyrir að Borgarlínan fengi forgang og sérrými. Það stæði þarna svart á hvítu. Hann sagði að það væri rétt en áréttaði þetta með útfærsluna og breytingar sem gætu átt sér stað.
Ég sagði honum þá að ég ætlaði að skrifa frétt um málið sem hefði þann útgangspunkt skv. núverandi forsendum að Borgarlínan fengi forgang og sérrými. Hann svaraði því játandi og sagði það rétt að skjalið sýndi að þetta væru núverandi forsendur miðað við síðustu uppfærslu í desember 2024.
Þetta er sagan á bak við fréttina.
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, sem skipar 6. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík, gerði athugasemd við frétt okkar á Facebook í morgun. Í fréttinni gat ég heimilda um hvar fréttin væri fengin. Bjarnveig bætti þá við að hún hefði haft samband við Betri samgöngur, nýjan forstjóra þar, Þorstein R. Hermannsson, og að það ætti að breyta skjalinu hjá Betri samgöngu.

Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, 6. sæti Samfylkingar í Reykjavík, á hinum líflega og stórgóða hitafundi í Skálanum Gufunesi, er hér við hliðina á Hildi Björnsdóttur og Ara Eðvald. Bjarnveig Birta er Grafarvogsbúi.
Mér finnst þetta gott framtak hjá Bjarnveigu, hún las heimildina mína hjá Betri samgöngum, skynjaði að hún væri rétt, fór í málið og hafði samband við Betri samgöngur og var ekki með neina sleggjudóma.
BETRI SAMGÖNGUR BREYTA SKJALI EFTIR FRÉTT OKKAR
Ég hafði svo samband við Atla Björn hjá Betri samgöngum í tölvupósti eftir hádegi í dag og hann sendir mér þetta:
„Við höfum skoðað þetta og teljum að við þurfum að uppfæra upplýsingar í verksjá. Við munum breyta sérrými í „áætluð lega/aksturslína“. Á þessum sömu forsendum og ég nefndi í símtalinu. Þ.e.a.s. á meðan vinna við hönnun er ekki hafin er ekki tímabært að tala um hvers konar rými almenningssamgöngur munu nota þarna. Þannig að við viljum í raun leiðrétta viðkomandi orðalag í verksjá. Kveðja,-Atli.“
Og rétt fyrir klukkan 16:00 í dag var búið að laga skjalið. Sérrými Borgarlínu er orðið að Akstursleið.
Ég hjó auðvitað eftir orðinu ótímabært. Er ótímabært að skrifa um þetta mál. Hver ákveður það eiginlega? Betri samgöngum kemur það ekki við!
Borgarlínan er kosningamál og íbúar í Grafarvogi eiga fullan rátt á að um hana sé skrifað og útskýrt fyrir kosningar hvernig hún er hugsuð í hverfinu. Það var gert í frétt okkar eftir bestu vinnuaðferðum blaðamennsku!
En sem sagt: Útfærslan liggur ekki fyrir á milljarða framkvæmd í Lotu 5 og þá hlýtur fjárhagsáætlunin líka - hvernig sem Betri samgöngur setja hana saman - líka að vera „býsna sveigjanleg“, svo ekki sé meira sagt.
Og nú er sérrými Borgarlínu orðið að látlausri akstursleið - og engar frekari forsendur og upplýsingar gefnar upp því það á alveg eftir að útfæra verkefnið sem áætlað er að verja milljörðum í á næstu árum.
Svo mörg voru þau orð! - JGH

Gullinbrú er helsta samgöngleið Grafarvogsbúa. Frétt okkar um að Borgarlínan fengi sérrými og forgang varð að slíku fjaðrafoki að Betri samgöngur hafa breytt skjali eftir fréttina úr sérrými í akstursleið. Það er ekki einu sinni sagt að leiðin verði deilileið; búið að taka hana líka úr skjalinu.

Kl. 12:00 í hádeginu í dag. Hér fer ekkert á milli mála; sérrými, og það var staðfest í símtali við Grafarvogur.net af hálfu Betri samgagna.

Kl. 16:00 í dag á vef Betri samgangna eftir frétt okkar. Ekkert sérrými, engin deilileið, bara áætluð akstursleið.

Flokkarnir voru sérstaklega spurðir um Borgarlínu og fækkun akreina á Gullinbrú af Íbúasamtökum Grafarvogs. Grafarvogur ákvað að skoða málið betur og upplýsa Grafarvogsbúa um stöðu máli. Flutt var frétt um forgang og sérrými Borgarlínu, skv. skjali Betri samgangna. Núna hefur skjalinu verið breytt. En fyrst Borgarlínan fær ekki sérrými, forgang og flýtimeðferð í umferðinni - til hvers er þá verið að leggja út í þetta milljarða verkefni í Grafarvogi?

Fundurinn með fulltrúum flokkanna í Skálanum í Gufunesi. Samgöngumál og umferðartafir fara fyrir brjóstið á mörgum íbúum.

