Þá er þetta byrjað aftur - þessi gatnamót voru skilin eftir síðasta haust
8. maí 2026
Þá er þetta byrjað aftur við Höfðabakkann. En þessi gatnamót við Höfðabakka-Bíldshöfða voru skilin eftir við snjallvæðingu ljósanna síðastliðið haust. Verktakanum tókst ekki að klára. Vonandi veit þetta á greiðari umferð um Höfðabakkann eftir framkvæmdirnar; svona smá bjartsýni í aðra röndina á fallegum vordegi. En skammtímaáhrifin eru fyrirsjáanlegar tafir og frekari umerðarteppa á næstunni. - JGH

Hver kannast ekki við þessa götumynd við Höfðabakkann frá síðasta hausti?


