Mikill kurr var um Spöngina á hitafundi með Heiðu borgarstjóra fyrir kosningarnar

19. október 2026

Mikill kurr var á frægum íbúafundi með Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra hinn 10. febrúar sl. á Bókasafni Grafarvogs þegar talið barst að fyrirhugaðri uppbyggingu Reita á Spönginni og fannst mörgum að með pælingum Reita væri verið að lauma inn íbúðum bakdyramegin í Grafarvog á sama tíma og þétting byggðar í hverfinu hefði verið mikið hitamál á meðal íbúa.


Rétt er að rifa þetta upp núna í tilefni af frétt Morgunblaðsins í morgun um könnun Reita um að ánægja sé á meðal Grafarvogsbúa um mikla uppbyggingu og fjölgun íbúða í Spönginni.


Sjá hér frétt Grafarvogur.net af fundinum á Bókasafninu 10. febrúar.


Meðal annars risu íbúar í grennd við Spöngina upp og spurðu hvort menn hefðu ekkert lært af Græna gímaldinu í Breiðholti og hvort smíða ætti virki um Spöngina; svo umfangsmiklar væru hugmyndir Reita.


Meðal annars reis einn fundarmanna upp og sagðist vera íbúi í Vættaborgum á bak við Spöngina og að miklir skuggar væru fyrirsjáanlegir í hverfinu yrðu þessar hugmyndir Reita að veruleika.


Fékk hann mikið lófaklapp í kjölfarið. - JGH

Frá hitafundinum 10. febrúar sl. Mikill kurr varð á meðal fundarmanna þegar talið barst að hugmyndum Reita um stórfellda uppgöngu á Spönginni og fjölda nýrra íbúða á svæðinu.

Spöngin. Á fundinum í febrúar kom fram að Reitir gerðu ráð fyrir að byggðar verði 140-170 íbúðir í 2-5 hæða blokkum á svæðinu - og að félagið stefndi að því að nýtt byggingarmagn verði 17.200 fermetrar, þar af 12.500 fermetrar af íbúðarrými. Í frétt Morgunblaðsins í morgun segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um fjölda nýrra íbúða.

Svona voru hugmyndir Reita kynntar á fundinum í febrúar sl. Svæði merkt 5 er húsnæði Hagkaupa, nr. 6 þar sem bókasafnið er - og nr. 1 er þar sem Bónus er núna. Takið eftir byggingunum lengst til hægri sem teygja sig inn á lóð Borgarholtsskóla og eru við beygjuna fyrir neðan skólann.