Eru Hildur og Heiða Björg núna á sama máli um fjölgun íbúða í Spönginni?
Ýmsir spyrja sig núna hvort allir flokkar í borgarstjórn séu ánægðir með tillögu Reita um stórfellda uppbyggingu í Spönginni. Já, og eru þær Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Heiða Björg Hilmisdóttir fyrrverandi borgarstjóri, skyndilega sammála um hugmyndir og tillögur Reita. Það er nú það!
Tillaga Reita að nýju deiliskipulagi var unnin í samstarfi við dönsku arkitektastofuna Henning Larsen og var fjallað um hana á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar á dögunum og óhætt er að segja að vel hafi verið tekið í hana.
Fulltrúar úr bæði meiri- og minnihluta létu í ljós ánægju sína í bókunum, segir m.a. í frétt Morgunblaðsins af málinu í dag.
Þá kemur þetta fram í frétt Morgunblaðsins:
Í bókun núverandi meirihluta í borginni á umræddum fundi sagði: „Hér er tækifæri til að styrkja Spöngina sem öflugan og lifandi hverfiskjarna Grafarvogs og skapa um leið eftirsóknarvert íbúðarumhverfi fyrir fólk á ólíkum æviskeiðum.
Þá er vert að hrósa Reitum fyrir að hafa leitað eftir sjónarmiðum íbúa Grafarvogs með könnun sem sýndi mikinn stuðning meðal þátttakenda við aukna þjónustu í Spönginni,“ sagði í bókun meirihlutans auk þess sem áherslum á fjölbreyttar húsnæðisgerðir, vönduð og græn dvalarsvæði, skjólgóð almenningsrými og gott samspil íbúða, verslunar og þjónustu var fagnað.
Fulltrúi Samfylkingar fagnaði sömuleiðis samráði við íbúa á svæðinu og lagði áherslu á að þar sem búast mætti við verulegri fjölgun íbúa og aukinni atvinnustarfsemi þyrfti að ráðast í umferðarmat, ekki síst svo hugað væri að öryggi barna og eldra fólks.“ - JGH

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri við undirritun samkomulagsin. Auk uppbyggingar við Spöngina samþykkti borgarráð samkomulag við Reiti er varðar Suðurlandsbraut 56 (Metróreit) og Nauthólsveg 50–52 (Loftleiðareit).


