Reitir segja Grafarvogsbúa taka vel í stórfellda uppbyggingu og fjölgun íbúða í Spönginni
Morgunblaðið segir frá því í frétt í morgun að fasteignafélagið Reitir ráðgeri mikla uppbyggingu í Spönginni og að Grafarvogsbúar hafi tekið vel í hugmyndir félagsins um uppbyggingu og fjölgun íbúða á svæðinu í könnun sem félagið lét gera.
„Félagið hyggst ráðast í uppbyggingu sem felur í sér byggingu nýrra íbúða og meira rými fyrir verslanir og þjónustu auk almenningsrýma,“ segir í fréttinni.
Og þar segir ennfremur: „Reitir létu framkvæma könnun meðal íbúa Grafarvogs um framtíð Spangarinnar. Þar kom fram að 53% íbúa 60 ára og eldri í Grafarvogi sjá fram á að vilja selja stærra húsnæði til að flytja í minni íbúð innan Grafarvogs en skortur er á slíkum þar. Mikill áhugi er á að almenningsrýmum og grænum svæðum verði fjölgað á svæðinu.“

Spöngin. Umfangsmikil frétt er í Morgunblaðinu í morgun um könnun sem Reitir létu gera meðal íbúa í Grafarvogi - og hyggst félagið gjörbylta Spönginni og reisa þar m.a. fjölda íbúða.
Fram kemur í fréttinni að blásið verði til íbúafundar á bókasafninu í Spönginni á næstu vikum samhliða því að formlegt skipulagsferli er að fara af stað þar sem fólk getur gert athugasemdir. Gangi áformin eftir gæti nýtt deiliskipulag fyrir svæðið legið fyrir á næsta ári.
„Fyrstu framkvæmdir gætu hafist eftir tvö og hálft til þrjú ár,“ segir ennfremur. - JGH


