Hildur ætlar að ganga í málið og láta klára hringtorgin við Egilshöll sem fyrst

18. júní 2026

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hafði beint samband við okkur á Grafarvogur.net út af nýlegri frétt  sem við birtum um hringtorgin tvö við Egilshöll sem ekki hafa verið kláruð og eru í mikilli órækt.


Hún sagðist ætla að ganga í málið og láta klára þessi hringtorg sem fyrst.


Ánægjulegt í alla staði en við á Grafarvogur.net höfum margoft kallað eftir aðgerðum við þessi hringtorg sem hafa verið borginni til skammar. - JGH

Frétt okkar um hringtorgin við Egilshöll sem Hildur Björnsdóttir hefur nú brugðist við. Í fréttinni var kallað eftir því að nýr meirihluti færi í málið og kláraði þessi hringtorg við Egilshöll.