Ilmurinn er indæll. Víða eru sýrenur í Grafarvogi. Vinsælt tré sem blómstrar þessa dagana!

30. júní 2026

Sýrena er vinsælt tré hér á landi og er víða að finna í Grafarvogi. Þessi á myndinni er komin til ára sinna en stendur ævinlega fyrir sínu á þessum árstíma.


Sýrena er ættkvísl blómstrandi runna og trjá af smjöviðarætt – og nýtur vinsælda vegna fegurðar og mikils ilms.


Sýrenur geta orðið allt að 3–4 metra háar og henta vel stakar sem stórir runnar eða sem lítil tré með marga stöngla.


Hún blómstrar yfirleitt miðsumars (júní-júlí) og eru blómin oftast í stórum, ilmandi klösum og liturinn er yfirleitt í fallegum tónum af fjólubláum, bleikum og hvítum. - JGH

Núna er tími sýrena. Þær njóta vinsælda vegna fegurðar og mikils ilms.