Hringtorgin við Egilshöll. Hvernig væri nú að nýr meirihluti kláraði þessi hringtorg?

12. júní 2026

Við fluttum nokkrar fréttir í fyrrasumar af hringtorgunum tveimur við Egilshöll og þeirri órækt sem hefur verið á þeim í nokkur ár frá því þau voru tekin í gagnið.


Í einni frétt okkar í fyrra vakti það mikla athygli að Hjalti J. Guðmundsson, skrifstofustjóri borgarlands, sagði í viðtali við okkur hjá Grafarvogur.net að meginástæðan fyrir því að ekki væri búið að setja niður gróður og ganga frá þessum tveimur umdeildum hringtorgum við Víkurveg, skammt frá Egilshöll, væri sú að endanlegri hönnun þeirra væri ekki lokið. 


Miklar umræður urðu í kjölfar þessara orða Hjalta á meðal Grafarvogsbúa um hvort það væri nú trúverðugt að borgin byggði hringtorg án þess að hanna þau áður.


Nú, og svo var spurt hvort ekki væri hægt að nota teikningar af öðrum nálægum hringtorgum í Grafarvogi.


- Er ekki nóg til að af teikningum af öðrum hringtorgum sem hægt er að nota? var spurt. Og sömuleiðis hvort það þyrfti mörg ár að hanna svona hringtorg?!


Er ekki gráupplagt fyrir nýjan meirihluta í borginni að verða sér úti um ljósritunarvél og ljósrita teikningar af þegar hönnuðum hringtorgum?


þessi tvö við Egilshöllina eru svo sannarlega ekki heimilisprýði í hverfinu okkar.


Að vísu virðist þeim fara fjölgandi sem elska njólann og annað illgresi, en það er önnur Ella. - JGH

Hjalti J. Guðmundsson, skrifstofustjóri borgarlands, gaf þá skýringu í fyrra að hringtorgin tvö við Egilshöll væru ekki kláruð vegna þess að hönnun þeirra væri ekki lokið. Enn gerist ekkert í málinu.

Til fyrirmyndar; Hringtorgið við Borgaveg og Sóleyjarima í gærkvöldi. Snyrtilegt og fínt. Að vísu sýnist þeim fara fjölgandi sem elska njólann og annað illgresi.

Annað sjónarhorn; hringtorgið við Borgaveg og Sóleyjarima í kvöldsólinni í gærkvöldi.

Hvað segið þið?  Fer ekki að koma tími á að draga upp teikniblokk og búa til létta skissu af torginu? Eða ljósrita og nota teikningar af öðrum hönnuðum hringtorgum og kippa þessu í lag?