Dramatík á fjölmennum hátíðarhöldum í Grafarvogi. Stórt hrós á skátana!

17. júní 2026

Það var líf og fjör á hátíðarhöldunum við Gufunesbæ sem skátafélagið okkar frábæra í Grafarvoginum, Skátafélagið Vogabúar, stóð fyrir eftir hádegi í dag í tilefni þjóðhátíðardagsins.


Stórt hrós á skátana fyrir þetta framtak og hundruð Grafarvogsbúa mættu á svæðið í 17. júní-stuði og skemmtu sér konunglega.


Jón Víðis töframaður mætti á svæðið og segja má að það hafi verið miklar sviptingar og dramatík þegar hann galdraði fram gleðibros hjá öllum með sínum góðu töfrum.


En það var líka annars konar dramatík á svæðinu. Þarna var tíkin Drama mætt á svæðið og eigendur hennar kalla hana auðvitað ekkert annað en Dramatík, hún heitir jú Drama og er tík.


Þetta er ekkert flókið hjá okkur Grafarvogsbúum.


Einstök skemmtun og takk aftur skátar fyrir ykkar framlag. Það munar svo sannarlega um ykkar góða starf! - JGH

Dramatík. Hjónin og Grafarvogsbúarnir Halla Björk Ásgeirsdóttir og Hjörtur Hafsteinn Hauksson með tvo gæða hunda, tíkur. Þær heita Esja og Drama. Drama er til hægri og af þýsku boxer-kyni. Hún er dramatík, segja þau Halla og Hjörtur.

Hamagangur á Hóli. Öllu stjórnað með stakri prýði.

Fjölmenni í brekkunni góðu.

Ærslagangur í rennibrautinni. Ef til vill ætti að kalla hana ærslabelg.

Blöðrur eru auðvitað ómissandi á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.

Blöðrurnar eru af öllum gerðum. Svei mér þá ef það er ekki hann Keikó sem svífur hér um.

Það er alltaf röð í sjálfan þjóðhátíðarréttinn; eina með öllu.

Þessi heiðurshjón, Jón Þorbjörnsson og Brynja Halldórsdóttir, hafa búið í Grafarvoginum í yfir þrjátíu ár og eru miklir skvassarar, þ.e. eru í Skvassfélagi Reykjavíkur í Sportklúbbnum við Stórhöfða. Jón var á árum áður þekktur markvörður með Þrótti og Skagamönnum.

Jón Víðis töframaður heillaði alla upp úr skónum og brekkan var mjög svo með á nótunum.

Einbeittur. Þetta dró hann upp úr pokanum.

Það leyndist margt í hattinum; merkilegt hvað svona hattar hafa mikið rými.

Töfrar eru ekki á hvers manns færi.

Börnin tóku að sjálfsögðu þátt í töfrunum.

Hér kom kanína upp úr hatti stúlkunnar.

Þetta trix gerði lukku. Stingdu höfðinu hérna í gegnum vinur. Sagði ég ekki; lifandi kanína.

Okkar maður vel peppaður og með allt á hreinu.

Það var fjör í kringum töfrapúltið. Þessi poki virtist alltaf tómur en upp úr honum komu alls kyns hlutir.

Það voru allir með á nótunum í brekkunni góðu.