Hann á ekki mikið eftir, blessaður! Hélt hann væri horfinn við fyrstu sýn
Þegar við vorum á ferð fyrir utan kjörstaðina í dag varð mér litið til Esjunnar og sýndist satt best að segja að skaflinn margfrægi í Gunnlaugsskarði væri horfinn.
Við nánari sýn og með aðstoð linsunnar í myndavélinni kom í ljós að svo var ekki.
En sýnist alveg að hverfa og eiga ekki mikið eftir. Í fyrra hvarf hann dagana 5. eða 6. ágúst. Sjá frétt.
Við á Grafarvogur.net höfum eins og fleiri borgarbúa áhuga á þessum skafli þar sem hann er eins konar loftslagsvísir, þ.e. segir okkur frá hitastiginu í höfuðborginni og veðurfari á hverju sumri.
Sá sem fylgdist lengst allra með skaflinum var Páll Bergþórsson, veðurfræðingur og fyrrum veðurstofustjóri.
William Shakspeare lætur Hamlet segja: To be, or not to be, that is the question. „Að vera, eða ekki vera, það er spurningin.“
Við segjum einfaldlega um skaflinn: Fer hann, eða fer hann ekki? Það er spurningin.
- JGH


