Glæsileg stöð Sorpu við Lambhagaveg - flottasta móttökustöð rusls í Evrópu

1. september 2026

Að sjálfsögðu var Grafarvogur.net á ferð og skoðaði nýja móttökustöð Sorpu við Lambhagaveginn vestan Vesturlandsvegarins, þ.e. skammt frá Korputorgi, í dag en hún var opnuð í morgun, 1. september.


Það verður að segjast eins og er að stórglæsileg er hún og sannast sagna langt yfir væntingum. Hún er raunar sögð glæsilegasta móttökustöð rusls í Evrópu.


Þetta er ekki alveg eins og að aka inn á venjulega stöð Sorpu - svo mikill er munurinn - og hann er langur vegurinn frá því að ekið var á haugana í Gufunesi í þá gömlu góðu þegar við frumbyggjarnir í Grafarvogi vorum að byggja og þurftum að fara með rusl og byggingarefni á haugana.


Hjá sumum voru haugarnir eins og skiptimarkaður - þeir fundu eitthvað nýtilegt sem þeir skelltu á kerruna þegar búið var að tæma hana.


Til hamingju Sorpa - vel gert!  - JGH

Glæsileg er hún nýja stöð Sorpu við Lambhagaveginn, vestan Vesturlandsvegar, og fer hún langt fram úr væntingum í glæsileika.

Það var í nógu að snúast hjá þeim Sorpumönnum við að „vísa veginn“ en þarna eru einar fjórar akreinar að gámunum.

Fjórar akreinar og á einni má ekki stoppa. Þetta er nánast eins og að aka að verslunarmiðstöð en ekki ruslagámum.

Auðvelt að athafna sig við gámana og allt á jafnsléttu.