Eldri maður slasaðist í morgun þegar hann hrasaði um misfellu á gangbraut við Rósarima

31. júlí 2026

Félagi í gönguhópi Korpúlfa, félagi eldri borgara í Grafarvogi, slasaðist í morgun þegar hann hrasaði um misfellu á gangbraut við Rósarima og fékk talsvert höfuðhögg.


Gönguhópurinn hafði þegar samband við sjúkraliðið sem flutti hann á bráðamóttöku Landspítalans.


Maðurinn var ásamt félögum sínum í Blómagenginu á göngu í Rimahverfinu í Grafavogi þegar óhappið varð. Eiginkona hans er einning í hópnum og fylgdi honum eðilega í sjúkrabílnum á bráðamóttökuna.

Félagar mannsins í gönguhópi Korpúlfa hlúa hér að honum meðan beðið var eftir sjúkrabílnum. (LJÓSMYND: INGIBJÖRG ÓSKARSDÓTTIR).

„Við vorum að fara yfir gangbraut við Rósarima þegar hann rak sig í misfellu á merktri gangbrautinni og steinlá,“ segir Ingibjörg Óskarsdóttir, félagi í Korpúlfum sem var í gönguferðinni í morgun og varð vitni að slysinu.


„Hann fékk talsverða áverka fyrir ofan vinstri augabrúnina sem greinilega þurfti að sauma. Gleraugun brotnuðu og þeyttust af honum. Við hringdum á sjúkrabíl og sjúkraliðarnir komu strax. Leiðin okkar í morgun var um Rimahverfið og við vorum rétt hjá Rimaskóla, að fara yfir gangbrautina þar, þegar þetta gerðist,“ segir Ingibjörg ennfremur.


Þess má geta að hún tók þessar myndir og sendi til okkar á Grafarvogur.net og kunnum við henni okkar bestu þakkir fyrir.


Gangstéttarnar í Grafarvogi hafa verið mjög í fréttum í sumar eftir að Soffía Jóhannesdóttir, 93 ára, slasaðist illa á gangbraut við Langarima þegar henni var ekið um í hjólastól sem lenti á misfellu á gangstéttinni þannig að Soffía kastaðist úr stólnum og lenti með höfuðið á stéttinni.


Sjá hér frétt Grafarvogur.net  þegar sú gangstétt  var steypt að nýju og löguð en ljóst er að víða er pottur brotinn þegar kemur að viðhaldi gangstétta í hverfinu. - JGH

Slysið varð á merktri gangbraut við Rósarima. Eins og sjá má er hún illa farin og viðhaldi greinilega ábótavant. Gangstéttir í Grafarvogi hafa verið mjög í umræðunni eftir að 93 ára kona slasaðist illa við Langarima fyrr í sumar. (LJÓSMYND: INGIBJÖRG ÓSKARSDÓTTIR).

Maðurinn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans en hann fékk slæmt höfuðhögg eftir að hafa hrasað um misfelluna. (LJÓSMYND: INGIBJÖRG ÓSKARSDÓTTIR).