Gangstéttin í Langarima - „frægasta gangstéttin í Grafarvogi“ - var steypt í morgun. Rennislétt og fín!
Gangstéttin við Langarima var steypt í morgun og fengu þeir hjá Almaverki gott steypuveður þótt um tíma í morgun hafi rignt á þá. En sólin var fljót að brjótst fram. Stéttin er núna slétt og fín.
Vísir kallaði gangstéttina í Langarima þar sem Soffía Jóhannesdóttir, 93 ára, slasaðist illa á dögunum „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ eftir að sonur Soffíu, Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, setti inn færslu á FB (sjá hér) um að móðir sín hefði slasast illa þegar henni var ekið um í hjólastól sem lenti á misfellu í gangstéttinni þannig að Soffía kastaðist úr stólnum og lenti með höfuðið á stéttinni. Sjá hér og hér.
„Þetta er um 500 fermetra kafli sem við erum að steypa og þetta kemur vel út og hefur gengið vel; heppnir með veður,“ segir Hjálmtýr Sandholt, verkstjóri og einn þriggja eigenda Almaverks sem er jarðvegsvinnufyrirtæki stofnað 2016 og annast þessa framkvæmd sem og fleiri fyrir borgina.
„Við tökum svo tvær aðrar stéttir í Grafarvogi í dag,“ bætir Hjálmtýr við.
- Hvað veldur því að steyptar gangstéttir springa svona?
„Skýringin er oftast ónýtur jarðvegur undir. Það þarf að skipta um jarðveg og hafa frostfrítt efni undir stéttunum,“ segir Hjálmtýr.
Tíu manns á vegum Almaverks unnu við steypuframkvæmdirnar við Langarima í morgun. - JGH

Hjálmtýr Sandholt, einn þriggja eigenda Almaverks.

„Frægasta gangstétt í Grafarvogi“ steypt í morgun.

Sléttstraujuð og fín.

Allt gert eftir kúnstarinnar reglum.

Gott mál. Hér er straujað af kunnáttu.

Hér verður ekki steypt heldur settar niður sérstakar blindrahellur með ákveðnu mynstri fyrir sjónskerta.

