Þotulið frá Mexíkó þeysti um sundin blá frá Gufunesi
Þau sögðust vera ferðamenn frá Mexíkó og það var ekkert annað en stórt sælubros á þeim þegar þau stigu í land á litlu flotbryggjunni í Gufunesi.
Þau höfðu þeyst um sundin blá á sæþotum frá Reykjavík Jet Skis og ljómuðu af ánægju þegar okkur bar að garði. Þotuævintýri þotuliðs að baki.
Hún er góð aðstaðan sem Reykjavík Jet Skis hafa komið sér þarna upp þarna við gylltu ströndina í Gufunesi. Fyrirtækið býður upp á sæþotuferðir undir leiðsögn út á Faxaflóa. Þetta er vinsælt sport.
Það eru hjónin Guðmundur Guðjónsson og Íris Long sem eiga fyrirtækið en synirnir Gauti og Guðjón láta vel til sín taka í rekstrinum. Fyrstu ferðirnar voru farnar sumarið 2023.
Það var Guðjón sem þeystist um með Mexíkóana í gær. En Gauti var „án búnings“ á litlu bryggjunni.
Flotbryggjan er tiltölulega ný af nálinni og „örlítið minni“ en gamla Gufunesbryggjan sem byggð var í kringum 1950 þegar Áburðarverksmiðjan tók til starfa.
Glæsilegt framtak. - JGH
(Ath. Íslenska nútímamálsorðabókin mælir með að nota orðið Mexíkói frekar en Mexíkani).

Mexikóarnir á tali við þá bræður Gauta og Guðjón á flotbryggjunni í gær. Örlítið stærri sæköttur við bryggju í Sundahöfninni.

Hún er fín aðstaðan sem fyrirtækið Reykjavik Jet Skis hefur komið sér upp í Gufunesi.


