Ertu þá farinn?
Enn og aftur um skaflinn í Gunnlaugsskarði sem við á Grafarvogur.net höfum látið okkur varða en veðurfræðingar hafa fylgst með honum í um 175 ár en hann er ákveðinn loftslagsvísir fyrir veðrið í höfuðborginni á hverju sumri. Sjá frétt.
Við tókum meðfylgjandi myndir í síðustu viku og sjáum ekki betur en að skaflinn (fannirnar) sé farinn. Það er þó óstaðfest!
Í fyrrasumar hvarf hann í kringum 6. ágúst en myndinar tókum við 8. september í síðustu viku og viljum trúa því að hann sé farinn - og að ekki sé einhver drullugur smá klaki eftir.
Á árunum 1852-1929 hvarf skaflinn aldrei.
Á árunum 1929-1964 hvarf hann 19 sinnum.
Á árunum 1965-1997 hvarf hann aldrei.
Síðan hefur hann bæði haldist og horfið.
Skítamórall á hið vinsæla lag Farin við lag og texta Einars nokkurs Bárðarsonar.
Lokalína textans er svona: Ertu þá farin, ertu þá farin frá mér?
Skaflinn er hins vegar karlkyns og sýnist farinn. - JGH

8. september 2026.

Horf upp í Gunnlaugsskarð Esjunnar frá bílastæðinu við Esjuna.

Heitt og kalt á víxl. Frá 1965-1997 hvarf skaflinn aldrei.

