Búið að laga línurnar á brúnni við Höfðabakka - orðið við beiðni okkar Grafarvogsbúa

14. september 2026

Hún fékk fljúgandi athygli frétt okkar um að nýjar merkingar á Höfðabakkabrúnni væru í ólagi og sköpuðu stórhættu.


Þegar ég átti leið um brúnna í gær sá ég að það var búið að laga línurnar og merkingarnar.


Nýju merkingarnar - línurnar í götunni - voru þannig að umferð á hægri akreininni var beint inn á miðjuna á Höfðabakkanum en sú til vinstri inn á beygjuakreinina inn á Bíldshöfðann.


Grafarvogsbúar sendu okkur fjölda ábendinga um að nær væri að hafa merkingarnar þannig að hægri akreinin færi inn á þá sem er lengst til hægri á Höfðabakkanum og sú vinstri lægi inn á miðakreinina.


Lagfæringin núna er sú að hægri akreinin er látin fara á þá sem er lengst til hægri á Höfðabakkanum og vinstri akreinin fer bæði inn á miðakreinina og beygjuakreinina inn á Bíldshöfðann.


Ábendingar hafa áhrif.


Gott mál. - JGH

Nýjar merkingar. Hér hafa línurnar í boganum verið lagfærðar þannig að umferðinni á hægri akreininn er beint inn á akreinina lengst til hægri í stað miðjunnar áður.

Ábendingar okkar Grafarvogsbúa höfðu áhrif. Búið að laga.

Bogalínan vísar núna umferðinni á hægri akreininni inn á akreinina lengst til hægri þegar ekið er niður Höfðabakkann í Grafarvoginn.