Gullinbrú bikuð í bongóblíðu Magga Kjartans

15. september 2026

Það hefur ekki farið framhjá okkur Grafarvogsbúum að helsta samgönguæð okkar út úr borginni, Gullinbrú, hefur verið lokuð í dag vegna malbikunarframkvæmda.


Sannast sagna dáist maður að því hvernig þetta er tekið í einum áfanga frá gatnamótum Fjallkonuvegar og upp að Stórhöfða. Vel gert.


Það hefur verið mikil bongóblíða í borginni í dag og viðrað vel til að bika.


Við settum hér í fyrirsögn Bikað í bongóblíðu Magga Kjartans.


Það kemur til af því að samkvæmt Vísindavef Háskóla Íslands kom orðið bongóblíða fyrst fyrir í laginu Sólarsamba sem Magnús Kjartansson söng á sínum tíma, fyrst árið 1988.


Þá vitum við það.


Og okkur líður talsvert betur á eftir - ekki satt? - JGH

Bikað á fullu á Gullinbrú í dag í bongóblíðu.

Stórvirk tæki og þetta tekur sífellt minni tíma fyrir þá í bikinu.

Gulir og vígalegir.

Gullinbrú bikuð - það var veðrið til þess.