Hjólhýsin fara ekki í Gufunesið - borgin hefur rift samningnum sem Heiða Björg gerði

14. júní 2026

Það hefur verið mikið skrifað um samning fyrrverandi meirihluta um að „byggð“ hjólahýsa og húsbíla við gömlu sementsturnana við Sævarhöfðann, í næsta nágrenni við Bryggjuhverfið, verði flutt yfir í Gufunesið.


Fyrrverandi borgarstjóri, Heiða Björg Hilmisdóttir, undirritaði samninginn á sínum tíma við nýstofnuð samtök hjólafólks.


Núna hefur nýr meirihluti í borginni rift þessum samningi þannig að hjólhýsin fara ekki í Gufunesið.(Sjá frétt hér.)


Miklar umræður hafa verið um þessi mál á samfélagsmiðlum og er óhætt að segja að sitt sýnist hverjum.


Þetta eru stór vonbrigði vegna þess að við vorum loksins farin að sjá fram á það að við hefðum einhvern smá möguleika á því að komast í eitthvað fallegra umhverfi heldur en hérna á Sævarhöfðanum,“ segir Geirdís Hanna Kristjánsdóttir í samtali við Vísi en hún er gjaldkeri Samtaka hjólabúa og er ein þeirra sem búa nú á Sævarhöfða. (Sjá frétt Vísis hér.)


EINAR GEFUR EKKERT FYRIR MÓTMÆLI GEIRDÍSAR

Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi gefur ekki mikið fyrir gagnrýni Geirdísar og segir við Vísi: „Þessi kona er nú reyndar varaborgarfulltrúi Sósíalistaflokksins sem beitti sér fyrir því í gegnum sinn flokk og aðra flokka í fráfarandi meirihluta að borgin myndi leggja út í fjárfestingu upp að allt að hundrað milljónir til þess að hún gæti búið frítt í hjólhýsi sem er ólögmætt samkvæmt gildandi rétti. Íbúar í Grafarvogi og fyrirtæki á svæðinu voru ekki spurð. Þessi samningur var fullkomlega óboðlegur og ein af mörgum ákvörðunum sem síðasti meirihluti tók, fullkomlega án skoðunar.“ (Sjá frétt hér.)


Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins og leiðtogi Sósíalistaflokksins í síðasta meirihluta, hefur tjáð sig um málið og segir uppsögn samningsins vera ömurlega.


„Miður er að sjá að nýr hægri meirihluti segi upp afnotasamningi sem er nýgerður við hjólabúa með engin áform um annað fyrirkomulag,“ skrifar hún í færslu á Facebook. 

Hjólhýsabyggðin við gömlu sementsturnanna við Sævarhöfða. Nú hefur nýr meirihluti rift samingnum um að hjólhýsin fari í Gufunesið.

Við á Grafarvogur.net höfum nokkrum sinnum fjallað um hjólhýsabyggðina við gömlu sementstankana við Sævarhöfðann en hún hefur verið þar undanfarin tvö ár og má segja að nánast allir hafi verið ósáttir við „þessa byggð“ þarna. Bæði þau sem búa í hjólhýsunum og húsbílunum en ekki hvað síst íbúar Bryggjuhverfisins. Um tíma var þarna slæm umgengni.


Grafarvogur.net fjallaði á dögunum um þá ákvörðun fyrrverandi meirihluta í borginni að útvega þeim 3.900 fermetra landspildu  landspildu í Gufunesi; á milli afnotasvæðis Skemmtigarðsins og íbúðabyggðar við Jöfursbás.

Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi og Geirdís Hanna Kristjánsdóttir. Mynd Vísir.

Þarna á bak við. „Byggð“ hjólhýsanna átti að vera á 3.900 fermetra landspildu í Gufunesi; á milli afnotasvæðis Skemmtigarðsins og íbúðabyggðar við Jöfursbás.

Afnotasvæðið á milli Skemmtigarðsins og íbúðabyggðar við Jöfursbás. Þarna er raunar stór gámur og mikið rusl í kringum hann.

Hjólahýsasvæðið hefði verið nálægt Kúluhúsunum sem eru í jaðri Skemmtigarðsins.

Þetta er 3.900 fermetra svæðið sem átti að fara undir hjólhýsabyggðina.