Eitt af síðustu verkum gamla meirihlutans - hjólahýsin fara upp í Gufunes

4. júní 2026

Eitt af síðustu verkum gamla meirihlutans í borginni var að flytja „byggð“ hjólhýsa og húsbíla frá Sævarhöfðanum yfir í Gufunesið. Sjá frétt Vísis hér.


Reykjavíkurborg og forsvarsmenn óstofnaðs félags, Samtaka hjólahýsabúa, hafa skrifað undir afnotasamning þess efnis.


Þetta kemur fram í fundargerð borgarráðs frá 16. apríl og var því með loka ákvörðunum gamla meirihlutans í borginni.


Um er að ræða 3.900 fermetra landspildu í Gufunesi sem er á milli afnotasvæðis Skemmtigarðsins og íbúðabyggðar við Jöfursbás.


Í frétt Vísis fyrir um viku segir að íbúar og forsvarsaðilar fyrirtækja á svæðinu hafi komið af fjöllum þegar að fréttastofa bar undir þau hvernig þeim litist á nýja staðsetningu hjólhýsabyggðarinnar.


Hér fyrir neðan má sjá staðsetninguna sem hjólabúar hafa fengið afnot af.

Hjólahýsabyggðin verður á vinstri hönd þegar ekið er niður Gufunesveginn.

Vonandi verður umgengni á nýja svæðinu betri en hefur verið síðustu tvö árin sem þessi „byggð“ hjólhýsa og húsbíla hefur verið við gömlu sementstankana við Sævarhöfðann.


Grafarvogur.net vakti sl. sumar athygli á þessari lélegu umgegni og draslinu sem var við Sævarhöfðann, íbúum Bryggjuhverfisins lítt að skapi.



Þess má geta að mikil og fréttnæm umræða hefur verið á meðal íbúa í Gufunesi um að fjölga bílastæðum á svæðinu en ekkert hefur verið hlustað á þær kröfur til þessa. - JGH

Það hefur farið frekar illa um hjólhýsin og húsbílana við gömlu, hrörlegu sementstankana við Sævarhöfðann og íbúar „byggðarinnar“ ekki sáttir við staðinn. Myndir teknar sl. mánudag.

Þessi „byggð“ hefur verið þarna við Sævarhöfðann í um tvö ár og þarna eru ágætir vagnar. Um tíma voru uppi hugmyndir um að flytja „byggðina“ í Skerjafjörðinn en það féll ekki í kramið.

Í fyrra. Við fluttum fréttir af því í fyrrasumar að umgengnin í „hjólhýsabyggðinni“ mætti vera betri og að sóðaskapurinn íþyngdi íbúum Bryggjuhverfis. Þetta hjólhýsi er sem betur fer ekki þarna lengur.

Klúbbhús „byggðarinnar“ við Sævarhöfðann. Það fylgir ekki með upp í Gufunes.

Ekki bara hjólhýsi, ágætir húsbílar þarna líka. Vel á minnst; bílhræin þarna uppi á hamrinum mættu hverfa. Þau eru ekki augnakonfekt fyrir íbúa Bryggjuhverfisins.