Sumir eru lengri en aðrir og taka meira pláss. En beygjan tókst vel hjá tröllinu!
15. júní 2026
Þeir eru misstórir bílarnir í umferðinni. Sumir eru lengri en aðrir og taka meira pláss.
Þessi er af lengri gerðinni og sannast sagna lék mér forvitni á að vita hvernig honum gengi að taka vinstri beygjuna af Höfðabakkanum niður akreinina að Vesturlandsvegi.
Og viti menn; það gekk bara furðu vel.
Ég læddi mér í humátt á eftir enda þurfti tröllið tvær akreinar.
Ég fann til smæðar minnar á litla Chevrolet Sparkinum mínum. - JGH

Sumir eru í lengri kantinum. Mesta furða hvað tröllinu gekk vel að beygja niður á Vesturlandsveginn.

