Það myndaðist smá glufa í stéttinni við gatnamótin og þetta litla tré nýtti sér það!
Þetta litla tré lætur ekki umferðarljósin við gatnamót Gullinbrúar og Fjallkonuvegar trufla sig. Það bifast ekki á grænu ljósi og hjá því er alltaf rautt.
Það verður fróðlegt að fylgjast með vexti þess í sumar.
Smá glufa í stéttinni og því ekki að nýta sér það.
Myndin tekin að kvöldi til í vikunni og sjáið hvað grasmönin í bakgrunninum er vel og fallega slegin og til mikillar prýði. - JGH

Það sprettur en samt ekki úr spori. Situr pikkfast við umferðljósin á gatnamótum Fjallkonuvegar og Gullinbrúar við út- og innkeyrsluna í Hamrahverfið.

Þessi tré eru aðeins stærri. Við gatnamót Gullinbrúar og Hallsvegar og norðurenda umræddrar jarðvegsmanar. Fallegt í kvöldsólinni.

