Búið að tyrfa annað torgið við Egilshöll, grænt og fallegt. Hitt að klárast líka!
Svona blasti það við vegfarendum í morgun, búið að tyrfa og hringtorgið orðið grænt og fallegt. Vel gert.
Við erum að sjálfsögðu að ræða um hringtorgið við Egilshöll, við gatnamót Borgavegar og Víkurvegar. Hitt torgið sem er neðar við Víkurveg er sömuleiðis að klárast. Verður væntanlega tyrft fyrir helgi.
Grafarvogur.net hóf að kalla eftir því snemma í fyrrasumar að borgin sæi sóma sinn í að ljúka við þessi torg en njólinn og illgreisið á þeim hefur verið til mikillar óprýði undanfarin ár og farið í taugarnar á mörgum Grafarvogsbúum.
Sitt sýnist raunar hverjum í þeim efnum og hafa komið fram ummæli við þessar fréttir okkar að best væri að hafa þetta í órækt og leyfa villtum gróðri að vaxa þarna.
Þau svör fengust í fyrrasumar hjá borginni að ástæðan fyrir því að ekki væri búið að ljúka við torgin væri sú að ekki væri búið að hanna þau.
Það hefur Grafarvogsbúum ekki þótti trúverðug skýring.
Þegar Grafarvogur.net skelli því fram nýlega hvort nýr meirihluti í borginni ætti ekki að klára þetta hafði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri beint samband við okkur og sagðist ætla í málið og beita sér fyrir því að hringtorgin yrði kláruð. Sjá frétt.
Til fyrirmyndar í alla staði! - JGH

Borgin búin að tyrfa fyrra torgið við Egilshöll. Snyrtilegt og fallegt!

Allt annar bragur á þessu.

Neðra torgið við Víkurveg gegnt Egilshöll. Allt að gerast þar líka.

Hér verður væntanlega tyrft fyrir helgi.


