HM-fánar Ólafs í Grafarvogi. Háspenna í leik Belga og Senegal. Og Englendingar áfram í hinum leik dagsins

1. júlí 2026

Það er gaman að því hvernig fánar keppnisþjóða á HM njóta sín í Grafarvoginum - þökk sé Ólafi Sverrissyni, verkfræðingi og fánaáhugamanni i Hamhrahverfinu.


Stórskemmtilegt framtak hjá honum að flagga á keppnisdögum.


Þótt Englendingar væru að leika við Kongó í dag þá valdi Ólafur að flagga fánum Belgíu og Senegal en sá leikur fór fram í kvöld.


Sá leikur endaði sem háspenna lífshætta og er einn af leikjum mótsins hingað til. Belgar unnu sögulegan sigur 3-2.


Raunar var spennan líka allráðandi í leik Englendinga og Kongó þar sem Kongó skoraði fyrsta markið.


Það reyndist Englendingum erfitt að jafna en það tókst og gott betur; þeir unnu leikinn 2-1 og skoraði Harry Kane bæði mörkin.


En HM-fánarnir í Grafarvogi setja ánægjulegan svip sinn á keppnina.


Takk Ólafur. - JGH