Þau eru óvænt úrslitin á HM þessa dagana. Tekst Svíum að leggja gott lið Frakka?

30. júní 2026

Það eru óvænt tíðindi í 32-liða úrslitunum á HM þessa dagana. Stórþjóðirnar í boltanum, Þýskaland og Holland, eru dottnar út úr keppninni.


Frændur vorir í Noregi keppa við Fílabeinsströndina í dag og í kvöld er það leikur Frakka og Svía. Stóra spurningin er auðvitað hvort Svíar sigri Frakkana í kvöld og tími óvæntra úrslita haldi áfram.


Fremur er það þó ólíklegt. Frakkar eru mjög sprækir og áhugasamir. Og það getur allt gerst!


Og að sjálfsögðu er áfram HM-flaggað á leikdegi í Grafarvoginum og um það sér Ólafur Sverrisson, verkfræðingur og fánaáhugamaður í Hamrahverfinu.


Skemmtilegt og til fyrirmyndar hjá Ólafi.  - JGH

HM-flaggað í Hamrahverfi í Grafarvogi. Tekst Svíum að leggja sprækt lið Frakka í kvöld?