Það hefur saxast á skaflinn í Gunnlaugsskarði. Hverfur hann innan tíðar?
18. ágúst 2026
Við höfum verið dugleg að fylgjast með skaflinum í Gunnlaugsskarði í Esjunni og birtar myndir af honum - og auðvitað velt því fyrir okkur hvort og hvenær hann hverfi þetta árið.
Það hefur saxast verulega á hann í hitanum að undanförnu en skaflinn er góðu mælikvarði um veðurlag á hverju sumri; eins konar loftslagsvísir. Sjá frétt okkar frá 1. ágúst.
Þessa mynd tókum við í gærkvöldi og hann á ekki mikið eftir - að okkar mati.
Verður hugsanlega horfinn í lok næstu viku. - JGH

Skaflinn í Gunnlaugsskarði í gærkvöldi. Enn eru þrír litlir snjóskaflar efst uppi í skarðinu.

Svona leit hann út 1. ágúst.

