Flæmingi Páls Óskars enn á Pallavagninum í Gufunesi í Grafarvogi. Öflugt listaverk!

18. ágúst 2026

Hann gnæfir yfir tól og tæki í Gufunesi í Grafarvogi tignarlegur mjög. Við erum að ræða um leikmyndina sem prýddi Pallavagninn vinsæla í Gleðigöngunni fyrr í mánuðinum; hinn risavaxna skúlptúr af bleikum flæmingja sem vakti svo sannarlega athygli.


Pallavagninn, þ.e. vagninn sem tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson ekur um á Gleðigöngunni, er útbúinn í Grafarvogi ár hvert.


Það er fyrirtækið Loftkastalinn í Gufunesi sem annast verkið með þau hjón Hilmar Pál Jóhannesson og Ingu Lóa Guðjónsdóttir, eigendur Loftkastalans, í aðalhlutverki og hafa þau útbúið Pallavagninn fyrir Gleðigönguna í áraraðir.


Þess má geta að Grafarvogur.net flutti sl. vor fjölda frétta af deilu þeirra við Reykjavíkurborg sem staðið hefur í sjö ár og snýst um hæðarkóta og hæðarmælingar. Þau hjón telja að borgin hafi sýnt þeim valdníðslu frá því deilan hófst.


Hvað um það - flæminginn stendur enn hnarreistur á palli Pállavagnsins í Gufunesi hátt í sjö metra hár.


Vel gert Hilmar Páll og Inga Lóa. - JGH

Hnarreistur blasir hann enn við vegfarendum í Gufunesi flæmingi Páls Óskars á Pallavagninum sem jafnan er útbúinn í Grafarvogi á hverju ári af fyrirtækinu Loftkastalanum. Tignarleg leikmynd.

Hjónin og listamennirnir Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir, eigendur Loftkastalans í Gufunesi, eru fólkið á bak við leikmyndina á Pallavagninum á hverju ári. Snillingar.

Pallavagninum ekið niður Skólavörðustíginn í Gleðigöngunni fyrr í mánuðinum.