Herskip sem taka þátt í Norður-Víkingi lágu fyrir utan Gufunes og Geldinganes
Það er ákveðinn bragur á því þegar maður sér nokkur herskip lóna á sundunum bláu.
Þessi dóluðu sér í makindum fyrir utan Gufunes og Geldinganes og engin átök þar í gangi enda við Grafarvogsbúar friðsælir þótt við hefðum aðeins látið í okkur heyra og mótmælt þéttingu byggðar fyrir um ári.
Þessi herskip eru frá ýmsum bandamönnum Íslands í NATÓ og taka þátt í varnaræfingunni Norður-Víkingi sem var sett formlega í gær við sérstaka athöfn á varnarsvæðinu í Keflavík.
Athöfnin markaði jafnframt formlegt upphaf loftrýmisgæslu Belga hér á landi, en þeir munu starfrækja hér fjórar F-16-orrustuþotur ásamt 110 manna liði.
„Æfingin að þessu sinni er ein sú umfangsmesta sem haldin hefur verið hér á landi, en áætlað er að 150-200 íslenskir þátttakendur komi að henni ásamt fjölþjóðlegum liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi og Atlantshafsbandalaginu,“ segir meðal annars í frétt Morgunblaðsins af heræfingunni. - JGH

Engin átök hér enda við Grafarvogsbúar friðsælir.

Fréttin um heræfinguna Norður-Víking var á forsíðu Morgunblaðsins í morgun.


