Yfir 65 þúsund hafa skoðað myndskeið okkar af sveiflu Dagbjarts, Íslandsmeistara í golfi
Núna hafa yfir 65 þúsund manns skoðað myndskeiðið sem Grafarvogur.net birti af Dagbjarti Sigurbrandssyni, nýkrýndum Íslandsmeistara í golfi, og við settum inn á FB-síðuna okkar.
Svo virðist sem hróður Dagbjarts hafi borist út fyrir landsteinana því þónokkir útlendingar hafa lýst ánægju sinni með það á FB-síðu okkar..
Dagbjartur er Grafarvogsbúi í húð og hár og ólst upp aðeins nokkur hundruð metra frá golfvellinum á Korpu.
Það er því ekki ofsögum sagt að Korpan sé heimavöllur Íslandsmeistarans enda landaði hann titlinum eftirsótta með miklum glæsibrag á Korpunni. Sjá frétt okkar hér.
En það er líka meira en lítið ánægjulegt fyrir Grafarvogur.net að yfir 65 þúsund manns hafi skoðað þetta myndband okkar af meistaranum - og sem fór á FB-síðu vefsins.
Svo sannarlega meistrasveifla. - JGH
Yfir 65.300 manns hafa skoðað þetta myndband sem Grafarvogur.net birti.


