Fána borgríkis við Miðjarðarhafið flaggað í Grafarvogi! Annað minnsta ríki í heimi

17. ágúst 2026

Þetta er fáni borgríkis við Miðjarðarhafið og hann skartaði sínu fegursta í kvöldsólinni í Grafarvoginum í kvöld.


Það var að sjálfsögðu Ólafur Sverrisson, verkfræðingur og eigandi stærsta fánasafns á Íslandi í eigu einstaklings, sem hér er að verki.


Fáninn er fáni Furstadæmisins Mónakó þar sem Albert 2 fursti ræður ríkjum.


Mónakó er innan landamæra Frakklands með strandlengju að Miðjarðarhafi við frönsku rívíeruna.


Íbúar eru tæplega 40 þúsund, en aðeins tæp 10 þúsund eru mónakóskir ríkisborgarar. - JGH

Albert 2 er fursti þessa smáríkis.

Fáni Mónakó blaktir í kvöldsólinni í Grafarvogi.